Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.8969565 og Hús fasteignasala kynna:
Björt og vönduð 127,2 m² íbúð á jarðhæð með sérinngangi í Stekkjahverfi á Selfossi.
Laus til afhendingar við kaupsamning.Húsið er fjórbýli á tveimur hæðum, hannað af TEARK arkitektum með áherslu á fágað útlit, gæði og notagildi. Íbúðin er á jarðhæð þar sem tvær íbúðir eru í hvorum húshluta og tengibygging með geymslum á milli. Staðsetningin er í suðvesturhluta Selfoss, í göngufæri við Stekkjaskóla.
Húsið er staðsteypt, einangrað og klætt að utan með álklæðningu. Einhalla þakið klætt með soðnum tjörupappa. Stórir ál/tré gluggar og góð lofthæð setja svip á íbúðina.
Nánari lýsing: Komið er inn um sérinngang í rúmgóða
forstofu með innbyggðum fataskáp. Þaðan liggur gangur að þremur
svefnherbergjum, öllum með fataskápum og harðparketi á gólfum.
Baðherbergið er rúmgott og flísalagt í hólf og gólf, með upphengdu klósetti, innréttingu, speglaskáp, handklæðaofni og þreplausri sturtu með innbyggðum blöndunartækjum. Í flísalögðu
þvottahúsi/geymslu er innrétting með plássi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, stýringum fyrir gólfhita og rafmagnstöflu.
Stofa, borðstofa og eldhús mynda bjart og opið alrými. Í eldhúsi er dökk innrétting með ljúflokum á skúffum og skápum, innbyggðri LED-lýsingu undir efri skápum og vönduðum heimilistækjum.
Í íbúðinni er svæðaskiptur
gólfhiti með stafrænum stýringum, harðparket á gólfum en flísar í votrýmum.
Gluggar eru ál/tré frá IDEAL allir að gólfi. Í loftum er dúkaloft með innfelldri lýsingu sem stuðlar jafnframt að góðri hljóðvist. Í tengibyggingu er sérgeymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Lóð er frágengin með grasi, gróðri, stéttum og malbikuðu bílaplani.
Vel skipulögð íbúð í vönduðu húsi þar sem rúmgóð rými, efnisval og útfærsla mynda aðlaðandi heild.- - VINSAMLEGAST PANTIÐ EINKASKOÐUN - - Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar og sýnir eignina.
S. 896 9565 loftur@husfasteign.is Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup) lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800.- af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.