ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna:Vandaða og vel hannaða íbúð í fjórbýlishúsi í nýju hverfi rétt við Stekkjarskóla á Selfossi.
Húsið er staðsteypt, klætt að utan með litaðri álklæðningu, þak er einhalla klætt með tvöföldu lagi af soðnum pappa. Gluggar og hurðir eru úr ál/tré frá IDEAL.
Gluggar í stofu og eldhúsi eru gólfsíðir og er íbúðin mjög björt og vel skipulögð.
Íbúðin sem er á neðri hæð er skráð 127,2m2 að stærð og skiptist hún í forstofu, þvottahús, baðherbergi, 3 svefnherbergi, stofu og eldhús auk geymslu.
Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar eru í eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi. Dúkur er í lofti.
Fataskápar eru í öllum herbergjum og forstofu.
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir, þar er stór gólfsturta með innbyggðum tækjum. Harðparket er á gólfum utan votrýma sem eru flísalögð.
Hjóla/vagnageymsla er í sameign.
Staðsetning er mjög góð en húsin standa rétt við nýjan grunnskóla.
Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.
arborgir@arborgir.is eða í síma 482-4800.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er: 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% fyrir fyrstu kaupendur og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. kr. 3.800,- hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda skv. gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.