Heimili fasteignasala kynnir einstaklega glæsilega og rúmgóða 4ra herbergja útsýnisíbúð með sérinngangi við Mosagötu í Urriðaholti í Garðabænum. Íbúðinni fylgir fullbúinn bílskúr með rafmagnshleðslu. Vandaðar innréttingar frá HTH, eldhústæki frá AEG og baðtæki frá Tengi. Rúmgóðar svalir með svalalo... Sýna meira
Heimili fasteignasala kynnir einstaklega glæsilega og rúmgóða 4ra herbergja útsýnisíbúð með sérinngangi við Mosagötu í Urriðaholti í Garðabænum. Íbúðinni fylgir fullbúinn bílskúr með rafmagnshleðslu. Vandaðar innréttingar frá HTH, eldhústæki frá AEG og baðtæki frá Tengi. Rúmgóðar svalir með svalalokun. Þvottahús er innan íbúðarinnar. Bókið einkaskoðun hjá Sigríður Lind Eyglóardóttir löggiltur fasteignasali. / 8994703.Nánar um eignina:Sérinngangur er í íbúðina. Forstofa með tvöföldum fataskáp og flísum á gólfi.Eldhús með vandaðri innréttingu frá HTH, vönduð tæki frá AEG, tengi fyrir uppþvottavél, eyja með span helluborði, parket á gólfi. Stofa/borðstofa björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengt er út á rúmgóðar svalir úr stofunni með svalalokun og viðarhellum á gólfi. Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi. Svefnherbergi II með fataskáp og parket á gólfi.Svefnherbergi III með fataskáp og parket á gólfi.Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtuaðstöðu, snyrtileg hvít innrétting, upphengt salerni. Handklæðaofn.Þvotthús er innan íbúðar, gott vinnuborð með skolvaski, flísar á gólfi. Geymsla íbúðar er á sömu hæð og íbúðin.Bílskúr er með rafdrifinni hurð, flotað gólf, heitt og kalt vatn, skolvaskur og slöngutengi. Tengill fyrir hleðslustöð. Hjóla og vagnageymsla á jarðhæð og sameign öll hin snyrtilegasta. Um er að ræða vel staðsett fjölbýlishús í nýju hverfi í Garðabæ. Virkilega falleg íbúð í góðu vistvænu umhverfi þar sem stutt er í fallega náttúru. Stutt í skóla og leikskóla sem og matvörubúðir og aðrar verslanir.Fjölbýlið Mosagata 5-7 er 5 hæða hús hannað af Úti-Inni arkitektum og byggt af verktökum Dalhús ehf. Alls eru 22 íbúðir í húsinu og 11 bílskúrar. Húsið er staðsett ofarlega í Urriðaholtinu miðju og býður upp á glæsilegt útsýni til suðurs og vesturs. Urriðaholtsskóli í allra næsta nágrenni. Á vef svæðisins www.urridaholt.is er að finna nánari upplýsingar um hverfið og þá hugsjón sem það er byggt á en þar segir meðal annars: "Urriðaholt er nýtt hverfi í Garðabæ með einstakt útsýni til allra átta. Urriðaholt byggir á hugsjón um að íbúabyggð eigi að hámarka lífsgæði fólksins sem þar býr í sátt við náttúruna í kring og umhverfið allt. Skipulag Urriðaholts er fyrsta hverfið hér á landi til að hljóta vistvottun samkvæmt vottunarkerfi BREEAM Communities". Í nágrenni við Urriðaholt eru miklir útivistarmöguleikar, sjá gönguleiðir hér, ósnortin náttúra allt um kring og góðar samgönguæðar fyrir bæði akandi og hjólandi sem stytta leiðir í allar áttir. Allar upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir löggiltur fasteignasali. / 8994703.Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi. Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.