HÚSASKJÓL KYNNIR:EIGNIN ER SELD OG ER Í FJÁRMÖGNUNARFERLI - ERUM MEÐ 15 AÐILA Á SKRÁ SEM ERU ÁHUGASAMIR UM KAUP Á SAMBÆRILEGRI EIGNEf þú ert í söluhugleiðingum hafðu þá samband við Böðvar lgf. í síma 766-8484 eða EINSTAKLEGA FALLEG ÚTSÝNIS ÍBÚÐ MEÐ BÍLSKÚR!SKRÁNING Í OPIÐ HÚS og UPPLÝSINGABÆKLINGU... Sýna meira
HÚSASKJÓL KYNNIR:EIGNIN ER SELD OG ER Í FJÁRMÖGNUNARFERLI - ERUM MEÐ 15 AÐILA Á SKRÁ SEM ERU ÁHUGASAMIR UM KAUP Á SAMBÆRILEGRI EIGNEf þú ert í söluhugleiðingum hafðu þá samband við Böðvar lgf. í síma 766-8484 eða EINSTAKLEGA FALLEG ÚTSÝNIS ÍBÚÐ MEÐ BÍLSKÚR!SKRÁNING Í OPIÐ HÚS og UPPLÝSINGABÆKLINGUR HÉR Böðvar Reynisson lgf. sýnir, s. 766-8484 eða Glæsileg 5 herb. endaíbúð með 23m² svölum og glæsilegu útsýni á 4. hæð auk bílskúrs, í vönduðu fjölbýli sem teiknað er af Kjartani Sveinssyni. Eignin er öll nýlega tekin í gegn og er einstaklega opin, björt og falleg, með mögnuðu útsýni og stórum svölum sem snúa í suður og austur. Húsið og sameignin hafa einnig fengið gott viðhald, sjá viðhaldssögu hér að neðan. Vesturbæjarlaug, Kaffi Vest, Melabúðin, KR völlurinn, leikskólar, skólar ofl. eru í göngufjarlægð og stutt í stofnbraut og almenningssamgöngur. Skipting eignar: Eignin er samtals 150,4m²Íbúð: 124m²Bílskúr: 20,8m²Geymsla: 5,6m²Forstofa, 3x svefnherbergi, 2x stofur, eldhús, baðherbergi, gangur með þvottaðstöðu, bílskúr og sérgeymsla í kjallara.Hjólageymsla og þvottahús eru í sameign.Stór sameiginlegur garður.Upphitað bílaplanNánari lýsing:Forstofa með fatahengi, rúmgóðum PAX forstofuskápum og parketi á gólfi.Stofan er á hægri hönd þegar gengið er inn frá forstofu. Stofan er rúmgóð og björt, með stórum suðurglugga með góðu útsýni þar sem m.a. Snæfellsjökull sést á góðum degi. Gengt út á 23,3m² svalir sem liggja með suður og austur hlið hússins með mögnuðu útsýni. Parket á gólfi. Búið er að opna á smekklegan hátt milli stofu, borðstofu og eldhúss, og vinnuherbergi skv. teikningu er nú hluti þessa rýmis og verður heildar ásýndin fyrir vikið einstaklega björt og falleg. Mögulegt væri að stúka aftur af sem herbergi. Borðstofan er rúmgóð með einstöku útsýni austur yfir borgina og fjallgarðinn í austri. Parket er á gólfi. Eldhúsið er nýlega endurnýjað, falleg og rúmgóð innrétting, með góðu vinnuplássi og eyju sem skilur að eldhús og borðstofu. Innfelldur ofn og helluborð í borðplötu. Tengi fyrir uppþvottavél. Gluggi í austur með mögnuðu útsýni. Fallegar 60x60 flísar á gólfi. Gangur er á vinstri hönd þegar gengið er inn í íbúðina frá forstofu sem liggur að öllum þremur svefnherbergjum og baðherbergi íbúðarinnar, á ganginum hefur verið komið fyrir innréttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara og gengt er út á austur hluta svalanna, sem liggja einnig suðurfyrir húsið. Parket er á gólfi. Svefnherbergi I: Hjónaherbergið er rúmgott með góðum PAX fataskápum og parketi á gólfi. Magnað útsýni í norður, yfir gamla Vesturbæinn til Esjunnar ofl.Baðherbergið var nýlega allt endurnýjað. Fallegar flísar á gólfi og á veggjum sturtunnar og á hluta veggja rýmisins, handklæðaofn, vegghengt salerni og hvít innrétting með handlaug og speglskápum að ofan. Svefnherbergi II: Parketi á gólfi og magnað útsýni í norður. Svefnherbergi III: Parket á gólfi og magnað útsýni í norðurBílskúr 20,8m² með vatni, hita og niðurfalli, sérafnot af stæði fyrir framan bílskúr. Veggur með suðurhlið, en hillur skilja bílskúrinn frá næsta skúr til norðurs. Sérgeymsla í kjallara með hillum 5,6m² Hjólageymsla og þvottahús í sameign. Viðhaldssaga undanfarin misseri skv. seljanda. Íbúð:Allar hurðir endurnýjaðar 2022Nýir fataskápar 2022Baðherbergi og eldhús endurnýjuð 2020, gólfefni, tæki, innréttingar ofl.Parket slípað 2020Raflagnir og rafmagnstöflur endurnýjaðar 2020Veggir teknir niður og vinnuherbergi skv. teikningu sameinað stofum 2020Gluggar endurnýjaðir að hluta og allar rúður endurnýjaðar 2021Svalahurðir endurnýjaðar 2021 Sameign: Stigagangur málaður og teppalagður 2021Að utan:Múrviðgerðir og málun að utan 2021Þak, þakrennur og niðurfallsrennur yfirfarið og málað 2021Ný handrið á svalir að utan 2021Frárennsli úr eldhúshluta Meistaravalla 7 frá fyrstu hæð og út í götu endurnýjað 2019Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máliErtu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmatErtu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkarFylgdu okkur á InstagramSkoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segjaHvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot HúsaskjólsErtu í fasteignahugleiðingum erlendis? Húsaskjól er meðlimur í Leading Real Estate Companies of the WorldHúsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property. Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði