*** EIGNIN ER SELD ***LANDMARK kynnir: Falleg 5 herbergja, 154,9 fm íbúð ásamt bílskúr á 2. hæð í nýlega lagfærðu og endurbættu húsi í Vesturbæ Reykjavíkur. Mikið endurnýjuð eign (sjá neðar í lýsingu). Þrjú svefnherbergi í dag en möguleiki að bæta því fjórða við. Bílskúr innréttaður sem íbúð.*** ... Sýna meira
*** EIGNIN ER SELD ***LANDMARK kynnir: Falleg 5 herbergja, 154,9 fm íbúð ásamt bílskúr á 2. hæð í nýlega lagfærðu og endurbættu húsi í Vesturbæ Reykjavíkur. Mikið endurnýjuð eign (sjá neðar í lýsingu). Þrjú svefnherbergi í dag en möguleiki að bæta því fjórða við. Bílskúr innréttaður sem íbúð.*** Nýlega var klára að endurnýja nær alla glugga og gler í íbúðinni og var húsið málað og þak yfirfarið og málað einnig. Múrskemmdir lagaðar og gert við þakrennur. Pappi endurnýjaður á bílskúr.***Forstofa / hol er með parketi á gólfi og fataskáp/hengi.Stofan er rúmgóð og björt með fallegu parketi á gólfi. Útgengt á suðvestursvalir. Möguleiki á fjórða svefnherberginu í stofu.Eldhúsið er með dúk á gólfi og fallegri innréttingu sem er hvít að hluta og með eldri viðaráferð.Svefnherbergin eru þrjú og er dúkur á herbergjum og eru tvö þeirra með fataskápum. Útgengt út á svalir úr herbergjagangiBaðherbergið er með nýlegri innréttingu að hluta með lakkað gólf, upphengt salerni og baðkar. Gólfhiti á baðherbergi.Þvottahús er innan íbúðar með nýlegri innréttingu og glugga.Í sameign er sérgeymsla íbúðar (6,2 fm) og sameiginleg rými. Bílskúr er innréttaður sem íbúð og var í útleigu.Nýlegar endurbætur að sögn seljenda: 2014: Öll gólfefni endurnýjuð, plankaparket á stofu og göngum og Linoleum dúkur á eldhúsi og svefnherbergjum. Baðherbergið var flotað. Skipt var um ofna í flestum rýmum.Baðherbergið var endurbætt og hiti settur í gólf. Flísalagt að stórum hluta, baðkar með sturtu sett upp og vaskur endurnýjaður ásamt handklæðaofni. Lagnir í baðherbergi endurnýjaðar inn í stamma.Eldhús gert upp. Gömlu efri skáparnir pússaðir upp og neðri hluti innréttingar endurnýjað og slitsterk borðplata sett á ásamt vönduðum blöndunartækjum. AEG bakaraofn og gashelluborð sett upp.Allar innihurðar sendar i lakk og bæs og skipt um húna. Rafmagn tekið í gegn og bætt við tenglum. Ljósleiðaratengi í veggjum í flestum rýmum.Bílskúr var gerður upp 2015. Hluti bílskúrs var hljóðeinangraður og notaður sem tónlistarherbergi. Veggir panellagðir, sett var upp salerni, eldhúskrókur og ljósleiðari.Skráning eignar skv eignaskiptayfirlýsinguEignin er 5 herbergja íbúð á 2. hæð hússins (02.02, birt stærð 125,1 fm) ásamt geymslu í kjallara (00.09, birt stærð 6,2 fm) og bílskúr í mhl 03 (01.05, birt stærð 23,6 fm). Eigninni tilheyrir hlutdeild í sameign allra, X, samkvæmt hlutfallstölu í matshluta 1.Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða ----------------------------------------------------------Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunarFáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA