Eignin er seld og er í fjármögnunarferli.Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega vel skipulagða, bjarta og glæsilega 129,3 fermetra 5 herbergja íbúð með suðursvölum á 3. hæð í nýviðgerðu og máluðu fjölbýlishúsi á eftirsóttum stað við Meistaravelli í Reykjavík auk 24,5 fermetr... Sýna meira
Eignin er seld og er í fjármögnunarferli.Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega vel skipulagða, bjarta og glæsilega 129,3 fermetra 5 herbergja íbúð með suðursvölum á 3. hæð í nýviðgerðu og máluðu fjölbýlishúsi á eftirsóttum stað við Meistaravelli í Reykjavík auk 24,5 fermetra bílskúrs með rafmagni og rennandi vatni. Húsið var múrviðgert að utan og málað árið 2020 og á þeim tíma var skipt um allt gler og glugga sem þurfti og eru gler og gluggar í þessari íbúð nánast allir endurnýjaðir. Þakjárn var yfirfarið og málað á sama tíma og skipt um þakrennur og niðurföll. Stigahús og sameign öll eru mjög snyrtileg og vel umgengin.Raflagnir og tafla í íbúðinni eru nýleg og baðherbergi er nýlega endurnýjað.Lýsing eignar:Hol, rúmgott, parketlagt og með fataskápum. Úr holi er gengið í stofu, eldhús og inn á svefngang.Eldhús, nýlega korklagt gólf, áfast matarborð með föstum sérsmíðuðum bekk með hirslum undir. Mjög fallegar hvítar + tekk innréttingar sem eru upprunalegar en endurbættar með nýlegri borðplötu og nýlegum vönduðum tækjum. Tengi fyrir uppþvottavél í eldhúsi og stór gluggi til suðurs. Þvottaherbergi, mjög rúmgott með glugga til suðurs, flísalagt gólf og vaskur. Búr, innaf þvottaherbergi, flísalagt gólf og hillur.Sjónvarpsstofa, parketlögð og opið úr henni inn í eldhús og inn í stofu. Hægt að breyta þessu rými í svefnherbergi og hafa opið inn í það úr holi.Stofa, mjög stór, björt og parketlögð með útgengi á skjólsælar og rúmgóðar parketlagðar svalir til suðurs með þaki yfir. Nýtt svalahandrið er á svölum.Svefngangur, parketlagður og rúmgóður.Barnaherbergi I, parketlagt og rúmgott með innbyggðum fataskápum.Barnaherbergi II, parketlagt. Baðherbergi, með glugga og mjög rúmgott. Flísalagt gólf og veggir, innrétting, veggskápur, handklæðaofn, vegghengt wc og baðkar með sturtuaðstöðu.Hjónaherbergi, stórt, parketlagt og með innbyggðum skápum á heilum vegg. Bílskúr, er með rafmagni og rennandi köldu vatni. Bílskúrinn sem er 24,5 fermetrar að stærð stendur efst í lengju og er því næst húsi. Tengi fyrir rafmagnsbíl er í bílskúr.Í kjallara hússins eru:Sér geymsla, með glugga og hillum, 5,4 fermetrar að stærð.Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla, með glugga og útgengi á lóð.Sameiginlegt inntaksrými með glugga og er nýtt sem sameiginleg geymsla undir hjól.Húsið að utan var múrviðgert og málað árið 2020 og þá var einnig skipt um allt gler og glugga í húsinu sem þurfti skv. skýrslu verkfræðistofu. Þakjárn var líka yfirfarið, endurbætt og málað og skipt var um þakrennur og niðurföll. Allri viðgerðarvinnu verður lokið í sumar.Lóðin er fullfrágengin með stóru malbikuðu bílaplani fyrir ofan hús með hitalögnum undir að hluta, hellullagðri stétt upp við húsið framanvert með hitalögnum undir og stórri tyrfðri sameiginlegri flöt til suðurs með sameiginlegu trampólíni fyrir börn.Staðsetning eignarinnar er virkilega góð og eftirsótt og stutt er í leikskóla, barnaskóla, gagnfræðaskóla, Háskóla Íslands, Sundlaug Vesturbæjar, íþróttasvæði KR, verslanir og þjónustu.Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu