RE/MAX og Þorsteinn Yngvason, lögmaður/löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu fallega, bjarta og vel skipulagða fimm herbergja íbúð að Meistaravöllum 15, 107 Reykjavík. Íbúðin skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, borðstofu, stofu, eldhús,
baðherbergi, þvottahús/búr, geymslu og bílskúr. ⭐️
Frábær staðsetning á þessum vinsæla stað í Vesturbæ Reykjavíkur⭐️
Möguleiki að bæta við fjórða svefnherberginu⭐️
Húsið og íbúðin hafa fengið gott viðhald síðastliðin árSamkvæmt HMS er birt stærð eignarinnar 152,7 fm, þar af er íbúðin 123,9, geymslan 5,5 fm og bílskúrinn 23,3 fm.
Nánari lýsing:
Anddyri: Flísar á gólfi og fatahengi.
Eldhús: Nýlega búið að endurnýja eldhús. Flísar á gólfi. Falleg hvít eldhúsinnrétting. Flísar milli efri og efri skápa. Bakaraofn, helluborð og vaskur. Gluggi í rýminu.
Þvottahús/búr: Inn af eldhúsinu. Gluggi í rýminu. Búr inn af rýminu.
Borðastofa: Parket á gólfi. Bjart og fallegt rými. Möguleiki að bæta við svefnherbergi.
Stofa: Parket á gólfi. Bjart og rúmgott rými. Útgengt út á svalir fra rýminu.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Hvít baðinnrétting, baðkar með sturtu og salerni. Gluggi í rýminu
.
Barnaherbergi 1: Dúkur á gólfi.
Barnaherbergi 2: Dúkur á gólfi og fataskápur.
Hjónaherbergi: Dúkur á gólfi og fataskápur.
Geymsla: Sér geymsla staðsett í sameign hússins.
Bílskúr: Bílskúr er staðsettur við gafl hússins. Rafmagn og kalt vatn í bílskúrnum.
Sameiginleg lóð: Barnvænn og skjólríkur garður.
Húsið/íbúðin hefur fengið gott viðhald í gegnum árin, en hér að neðan er að finna útlistun á helstu framkvæmdum síðustu ár:
-2026 - Rafmagn endurnýjað, þ.e. ný rafmagnstafla og tenglar.
-2024 - Rafmagnstafla í sameign endurnýjuð, frárennslislagnir yfirfarnar og endurnýjaðar að hluta.
-2023 - Eldhús endurnýjað, ásamt flísum í rýminu og anddyri.-2020-21 - Húsið múrviðgert og málað að utan, endurnýjað gler og gluggar eftir þörfum, þakjárn yfirfarið endurbætt og málað. Endurnýjaðar þakrennur og niðurföll. Þakpappi endurnýjaður á bílskúrum, ásamt múrviðgerðum og málningu.Allar frekari upplýsingar veitir:
Þorsteinn Yngvason, lögmaður/löggiltur fasteignasali, í síma 696-0226 eða thorsteinn@remax.is