ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Mávabraut 7, 230 Reykjanesbær, birt stærð 66.8 fm.
Um er að ræða fallega þriggja herbergja íbúð á annarri hæð að Mávabraut 7 í Keflavík þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Eignin var mikið endurnýjuð að innan árið 2020. ** Eldhús og baðherbergi voru endurnýjuð.
** Rafmagn og tafla hefur verið endurnýjað og voru rofar og tenglar endurnýjaðir.
** Þak endurnýjað 2020.
** Neysluvatns lagnir voru endurnýjaðar árið 2007.
** Húsið hefur verið sprunguviðgert og port málað. Nánari upplýsingar veitir/veita:
Sigurjón Rúnarsson Aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 771-9820, tölvupóstur sigurjon@allt.is.
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is Nánari lýsing eignar:Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús með parketi á gólfi. Þar er hvít stílhrein innrétting með innbyggðum ísskap / frysti, uppþvottavél, span helluborði og svörtum háf.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi.
Svefnherbergin eru tvö eru með parketi á gólfum, fataskápar eru í þeim báðum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Lítil hvít innrétting, upphengt salerni og baðkar með sturtu.
Þvottahús með parketi á gólfi. Hvít innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Gluggi
Sér geymsla í sameign.
Umhverfi: Góð staðsetning þar sem stutt er í skóla, leikskóla og íþróttamannvirki ásamt flestri þjónustu.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.