Guðmundur Þór Júlíusson og Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:Björt og rúmgóð þriggja herbergja íbúð á frábærum stað í góðu fjölbýlishúsi í Löndunum í Fossvogi að Marklandi 10, 108, Reykjavík. Eignin telur 85,5 fm og er á 3. hæð. Skipulag telur, tvö svefnherbergi (auðvelt að bæta við þriðja herberginu), baðherbergi og þvottaherbergi, ásamt alrými með eldhúsi, borðstofu, stofu og útgengi á rúmgóðar svalir ásamt sér geymslu í kjallara. Góð hjólageymsla í sameign.
Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is eða á Ástþór Reyni í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið arg@remax.is
Nánari lýsing eignar: Eldhús er parketlagt, falleg innrétting, innbyggð uppþvottavél, innbyggður ísskápur, spanhelluborð og bakarofn er í vinnuhæð.
Stofa og Borðstofa er rúmgóð og björt með fallegu útsýni yfir Fossvogsdalinn. Úr stofu er útgengi á rúmgóðar svalir sem snúa í suður.
Svefnherbergi I parketlagt, nýtt sem barnaherbergi í dag.
Hjónaherbergi er parketlagt og með rúmgóðum fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf ásamt sturtu. Inná baðherbergi er tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt góðu skápaplássi.
Eignin hefur fengið gott viðhald síðustu ár.
Innanhúss: 2019 - skipt um gólfefni, nýtt eldhús, dregið í nýtt rafmagn innan íbúðar og baðherbergi endurnýjað.
Utanhúss:2018 - 2019 var húsið múrviðgert og málað að utan, skipt um glugga og gler eftir þörfum og sett ný svalahandrið.
2016 - Skólplagnir fóðraðar árið 2016.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð, miðsvæðis í borginni á grónum stað þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, fallegar gönguleiðir í Fossvogsdalnum, verslanir og þjónustu.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.