Atli og Hrafnkell á Lind kynna í einkasölu þessa einstaklega huggulegu og mikið endurnýjuðu 3ja herbergja íbúð á þriðju og efstu hæð við Maríubakka 6 í Reykjavík. Rúmgott þvottahús er innan íbúðar og glæsilegt útsýni úr stofu og eldhúsi þar sem höfuðborgin, Esjan, Akranes og Snæfellsjökull blasa við.Eignin Maríubakki 6 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 204-7927, birt stærð 83.8 fm (þar af 9,4 fm geymsla).Íbúðin skiptist í: Forstofu, stofu og borðstofu, eldhús, hjónaherbergi, barnaherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Nánari upplýsingar og bókið skoðun hjá:
Atli Karl Pálmason - Löggiltur fasteignasala / 662 4252 / atli@fastlind.is
Hrafnkell P. H. Pálmason - Löggiltur fasteignasali / hrafnkell@fastlind.is / 690 8236Nánari lýsing:
Forstofa með parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa í opnu björtu alrými með krók, parketi á gólfi og
útgengi út á vestursvalir.Eldhús með hvítri innréttingu, flísum á veggjum, parketi á gólfi og ofn í vinnuhæð.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með handklæðaofni og opinni sturtu með glerþili.
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og loftháum fataskáp með spegli.
Barnaherbergi er lítið með parketi á gólfi.
Þvottahús er rúmgott með glugga og ofni
(hefur verið nýtt sem auka svefnherbergi).
Rúmgóð sérgeymsla (9,4 fm) er í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Auk þess er þurrkherbergi og önnur sameiginleg geymsla í sameign sem hefur verið nýtt sem dekkjageymsla.
Viðhaldssaga hússins (m.a. upplýsingar frá fyrri eigendum):
- Skipt var um skólplagnir í grunni og brunna í sumar (2026).
- Nýtt harðparket á gólfi og flísar á eldhúsveggjum 2023.
- Ofn í stofu endurnýjaður 2024.
- Bakarofn í eldhúsi og ofnar í herbergjum endurnýjaðir 2020.
- Húsið var tekið í gegn að utan (2019-2020), m.a. múrviðgerðir og málað, gluggar endurnýjaðir eftir þörfum, skipt um rennur og þakjárn endurnýjað.
- Gluggar í herbergjum og eldhúsi endurnýjaðir 2019.
- Baðherbergi var endurnýjað 2017.Um er að ræða virkilega falleg eign á frábærum stað sem hefur verið mikið endurnýjuð síðust ár ásamt heildarhúsi í barnvænu hverfi þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Einnig er leiksvæði er á lóðinni fyrir yngstu kynslóðina.
Lind fasteignasala ehf kynnir eignina Maríubakki 6, 109 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 03-03, fastanúmer 204-7927 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
-----------------------------------------------------------------------Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.