NÝTT Í SÖLU - MÁNATÚN 17, GLÆSILEG 186,2 FM ÚTSÝNISÍBÚÐ Á EFSTU HÆÐ Í LYFTU HÚSI MEÐ TVENNUM SVÖLUM OG TVEIMUR STÆÐUM Í BÍLAGEYMSLU VIÐ MÁNATÚN 17 Í REYKJAVÍK. Valhöll fasteignasala og Heiðar Friðjónsson lögg. fast, s. 693-3356, kynnir: 186,2 fm útsýnisíbúð á efstu hæð við Mánatúnm 17, íbúðin er ... Sýna meira
NÝTT Í SÖLU - MÁNATÚN 17, GLÆSILEG 186,2 FM ÚTSÝNISÍBÚÐ Á EFSTU HÆÐ Í LYFTU HÚSI MEÐ TVENNUM SVÖLUM OG TVEIMUR STÆÐUM Í BÍLAGEYMSLU VIÐ MÁNATÚN 17 Í REYKJAVÍK. Valhöll fasteignasala og Heiðar Friðjónsson lögg. fast, s. 693-3356, kynnir: 186,2 fm útsýnisíbúð á efstu hæð við Mánatúnm 17, íbúðin er öll hin glæsilegasta, með sérlega skemmtilegu skipulagi og frábæru útsýni út á sundin og upp á Snæfellsnes.Eignin skiptist í rúmgott eldhús og rúmgóðar stofur með tvennum svölum í suður og vestur, vestur svalirnar eru með svalarlokun, en suðursvalirnar eru stórar og sólríkar. Tvö herbergi, hjónaherbergi með fataherbergi og baðherbergi innaf og öðru herbergi sem er mjög rúmgott, en átti upphaflega að vera tvö herbergi, og lítið mál að breyta því til baka. Í kjallara er mjög stór geymsla og tvö vel staðsett bílastæði í bílageymslu. Húsið er allt hið vandaðasta og eru einungis tvær íbúðir á efstu hæðinni. Nánari Lýsing: Komið er inn í anddyri með góðum skáp og harðparketi á gólfi. Eldhúsið er L-laga með eyju, vönduðum tækjum og harðparketi á gólfi, opið inn í rúmgóða borðstu, úr borðstofu er útgengi út á litlu svalirnar sem snú mót suðri og vestri. Stofurnar eru rúmgóðar með harðparketi á gólfi og útgengi út á suður svalir. Hjónaherbergið er rúmgott með fataherbergi innaf og baðherbergi sem er með flísum á veggjum og gólfi, innréttingu og sturtu, vönduð blöndunartæki. Herbergið er rúmgott og voru teiknuð tvö en breytt í eitt rúmgott, auðvellt er að breyta því til baka og setja aðra hurð. Baðherbergið á svefnherbergisganginum er með flísum á veggjum og gólfi, innréttingu og sturtu. Þvottarhús með innréttingu er innan íbúðar með flísum á gólfi. Í kjallara er stór séreignargeymsla og sameiginleg hjóla og vagnageymsla. Í bílastæðahúsinu eru tvö vel staðsett bílastæði sem fylgja eigninni. Þetta er frábær íbúð í nýlegu húsi við Mánatún í Reykjavík, með tvennum svölum og tveimur bílastæðum, þetta er íbúð sem vert er að skoða og koma ekki oft inná markaðinn. Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Heiðar Friðjónsson löggiltur Fasteignasali S. 693-3356, Ertu í fasteignahugleiðingum, Þarftu að selja ? Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, byggða á 20 ára samfeldu starfi við fasteignasölu á Íslandi, sanngjörn söluþóknun, sláið á þráðinn í síma 693-3356 VALHÖLL FASTEIGNASALA, SÍÐAN 1995 - FARSÆL OG ÖRUGG FASTEIGNAVIÐSKIPTI - EINGÖNGU LÖGGILTIR FASTEIGNASALAR OG LÖGFRÆÐINGAR ANNAST ÞÍN SÖLUMÁL HJÁ OKKUR. VALHÖLL ER FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI SAMKVÆMT GREININGU CREDITINFO 2015-2020, EN AÐEINS 2,0% FYRIRTÆKJA Á ÍSLANDI NÁÐU ÞEIM GÆÐASKILYRÐUM. Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.