MÁNATÚN 15, 105 REYKJAVÍK.Einstaklega falleg og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á fjórðu hæð, ásamt sérstæði í bílageymsluhúsi og sérgeymslu í kjallara. Fallegt útsýni af yfirbyggðum svölum til vesturs.Birt stærð íbúðar er 120,4 fm., þar af er 11,5 fm. sérgeymsla.HÉR ER HÆGT AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT S... Sýna meira
MÁNATÚN 15, 105 REYKJAVÍK.Einstaklega falleg og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á fjórðu hæð, ásamt sérstæði í bílageymsluhúsi og sérgeymslu í kjallara. Fallegt útsýni af yfirbyggðum svölum til vesturs.Birt stærð íbúðar er 120,4 fm., þar af er 11,5 fm. sérgeymsla.HÉR ER HÆGT AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT SENT STRAXHúsið er vandað lyftuhús, 6 hæða með 12 íbúðum, byggt 2014. Mjög snyrtileg sameign.Komið er inn í parketlagða forstofu með skáp. Björt stofa með útgengi á rúmgóðar yfirbyggðar svalir til vesturs með fallegu útsýni. Eikar harðviðarparket frá Birgisson á gólfum.Rúmgott eldhús opið við stofu með stórri eyju. Spanhelluborð og AirForce háfur með lýsingu. Borðplötur og waterfall úr Silestone stein frá Rein (3cm), niðurfelldur vaskur. 12 mm Silestone steinn milli efri og neðri skápa og lýsing undir skápum. Tvö parketlögð svefnherbergi með góðum skápum.Flísalagt baðherbergi í hólf og gólf með gólfhita, 3cm silestone borðplata. Handklæðaofn, opin sturta (walk in) og upphengt salerni. Þvottahús er innan eignar með góðri innréttingu í vinnuhæð og vaski.Mynddyrasími og dimmerar á ljósum.Í sameign er hjóla og vagnageymsla ásamt 11,5 fm. sérgeymslu.Sérstæði með bílahleðslustöð í bílageymsluhúsi.Eigendur fóru í eftirfarandi framkvæmdir og breytingar 2022:- Innréttingar í eldhúsi, baði og forstofuskápur lakkaðar, (Dimmur Slippfélagið).- Innihurðir og hurðakarmar lakkaðir, (Dimmur Slippfélagið).- Öllum borðplötum í eldhúsi og baði ásamt eyju skipt út fyrir Silestone stein frá Rein, 3 cm. (Cemento spa).- Silstone steinn 12 mm á milli efri og neðri skápa í eldhúsi (Cemento spa).- Niðurfelldur vaskur í eldhúsi ásamt svörtum blöndunartækjum.- Handlaug ásamt svörtum blöndunartækjum í baðherbergi.- Spanhelluborð, innbyggð uppþvottavél, AirForce háfur.- Skápur í baðherbergi málaður í sama lit og veggir / loft.- Íbúð máluð í tveim litum úr ilm litakorti Sæju: Leir og Lakkrís.- Sérsaumuð gluggatjöld úr hör efni í stofu og svefnherbergjum.- Ísskápur, innréttingar í holi og bókaskápur í stofu geta fylgt með, allt eftir nánara samkomulagi.Virkilega falleg þriggja herbergja íbúð á þessum eftirsótta stað við Borgartún. Stutt í alla helstu þjónustu.VINSAMLEGA BÓKIÐ SKOÐUNNánari upplýsingar:Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali, s: 898-6822 / Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5800 / ----------------------------------------------------------Heimasíða Helgafells fasteignasöluFacebook síða Helgafells- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 79.980,- m/vsk.Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.