Byr fasteignasala kynnir í einkasölu MÁNAMÖRK 1, íbúð 207, í Hveragerði. Stúdíoíbúð á efri hæð í fjölbýlishúsi í hjarta bæjarins. Um er að ræða íbúð á efri hæð sem er 27,5 m² að stærð, samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.Skipulag: alrými með forstofu, stofu, eldhúsi og svefnherbergi, baðherbergi.Ná... Sýna meira
Byr fasteignasala kynnir í einkasölu MÁNAMÖRK 1, íbúð 207, í Hveragerði. Stúdíoíbúð á efri hæð í fjölbýlishúsi í hjarta bæjarins. Um er að ræða íbúð á efri hæð sem er 27,5 m² að stærð, samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.Skipulag: alrými með forstofu, stofu, eldhúsi og svefnherbergi, baðherbergi.Nánari lýsing:Eignin telst stúdíóíbúð.Forstofa er opin að alrými og opnast inn í eldhús/stofu.Eldhús, stofa og svefnherbergi eru saman í alrými.Eldhús er með nýlegri innréttingu og tækjum, AEG keramikhelluborð, AEG ofn og stálvaskur.Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, sturta, upphengt salerni, handklæðaofn og vaskinnrétting. Á baðherbergi er tengi fyrir þvottavél og þurrkara.Gólfefni: Vínylparket er á allri eigninni nema baðherbergi, þar eru flísar.Sameign:Komið er inn í sameign með flísum á gólfi, þar sem eru póstkassar. Stigi liggur upp á aðra hæð en einnig er lyfta. Frá stigapalli við lyftu er gengið út á svalagang að íbúðinni. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á jarðhæð hússins. Snyrtileg og nýleg eign á góðum stað miðsvæðis í Hveragerði. Kjörin fyrsta eign. Ýtið hér fyrir staðsetningu.Hveragerði státar sig af því að þar eru íbúar ánægðastir á landinu samkvæmt könnun Gallup 2020. Hveragerði er tilvalinn búsetukostur fyrir alla, jafnt barnafjölskyldur sem og þá sem vilja breyta til og koma sér fyrir á rólegum stað innan um ósnortna náttúru. Bærinn er í einungis 25 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík og almenningssamgöngur til og frá höfuðborgarsvæðinu er tíðar.Í Hveragerði er jafnframt öflugt íþróttastarf og mörg tækifæri til útivistar og afþreyingar, til dæmis Golfvöllurinn í Gufudal, sundlaugin í Laugaskarði og jarðhitaparadísin Reykjadalur. Einnig má nefna náttúruperlur á borð við Hveragarðinn og Varmá sem liðast í gegnum miðbæinn, Hamarinn og fjölbreytta göngustíga.Í bænum er margvísleg menningarstarfsemi fyrir alla aldurshópa, þar með talið bókasafn og Listasafn Árnesinga. Menningar- og fjölskylduhátíðin Blómstrandi dagar er árlegur viðburður og á fastan sess í bæjarlífinu. Eins má nefna mikla grósku í veitingalífi bæjarins. Úrval spennandi veitingastaða þar sem hráefni úr héraði er í heiðri haft fer sívaxandiALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – Hrönn Bjargar Harðardóttir, hefur lokið námi til löggildingar, sölufulltrúi - stílisti - Irpa Fönn Hlynsdóttir, hefur lokið námi til löggildingar, - skrifstofa. Um skoðunarskyldu:Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun. Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.www.byrfasteign.is | Austurmörk 4, 810 Hveragerði | Byr fasteignasala