Heimili fasteignasala kynnir einkar hlýlega 107,3 fm hæð á Lynghaga. Baðherbergi og gólfefni nýlega endurnýjuð en eldhúsið haldið sínum gamla stíl. Nýlega skipt um glugga á norðurhlið. Innkeyrslan tilheyrir íbúðinni og tilgreindur er byggingaréttur fyrir bílskúr. Ægissíðan á næsta horni, með sin... Sýna meira
Heimili fasteignasala kynnir einkar hlýlega 107,3 fm hæð á Lynghaga. Baðherbergi og gólfefni nýlega endurnýjuð en eldhúsið haldið sínum gamla stíl. Nýlega skipt um glugga á norðurhlið. Innkeyrslan tilheyrir íbúðinni og tilgreindur er byggingaréttur fyrir bílskúr. Ægissíðan á næsta horni, með sinn sjarma, göngu- og hjólastíga. Útivistar- og leiksvæði á samliggjandi baklóð gefur eigninni aukið gildi. Hverfið nýtur vinsælda, stutt að ganga á háskólasvæðið, í leikskóla og miðbæinn. Eignin skiptist í rúmgott hol, þrjú svefnherbergi, bjarta stofu, eldhús, baðherbergi og geymslu. Í kjallara eru tvær sérgeymslur (3,2 og 5,3 fm) auk sameignlegs þvottahúss, hjóla- og vagnageymslu. Íbúðin deilir inngangi með risíbúðinni. Gengið er upp teppalagðan stiga, uppá rúmgóðan pall í björtu rými, sem nýta má fyrir fatahengi eða -skáp. Ný eldtefjandi hurð er inn í íbúðina, komið í rúmgott hol, þar sem gengið er inn í öll rými. Á vinstri hönd eru tvö góð svefnherbergi og stofa. Fyrir enda holsins er stórt svefnherbergi en eldhús og baðherbergi til hægri. Allt vel rúmt og einkar hlýlegt. Áður voru tvær samliggjandi stofur en annarri verið breytt í herbergi, enda þau orðin þrjú talsins. Stofan er vel rúm, engu að síður og þaðan gengið út á sólríkar suðvestur svalir. Ný svalahurð. Öll herbergin eru vel stór en ekki eru í þeim fastir skápar. Baðherbergið hefur verið endurnýjað, flísar á gólfi, sturtuklefi og opnanlegur gluggi. Eldhúsinnrétting er upprunaleg, sem mörgum þykir áhugavert, en aðrir sjá tækifæri í að breyta. Góðir gluggar í eldhúsi og borðstofu, langt í næsta hús og gott næði.Ekki standa yfir framkvæmdir en senn kemur að því að skipta út þeim gluggum sem enn eru upprunalegir. Unnið hefur verið að teikningum að bílskúrsbyggingu og breyttri innkeyrslu, henti það nýjum eigendum. Þangað til á íbúðin merkt stæði við innkeyrslu.Góð staðsetning í Vesturbænum í nágrenni við fjölbreytta þjónustu, skóla á öllum stigum og falleg útivistarsvæði við sjávarsíðuna. Lóðin er stór og er opið leiksvæði norðan megin við húsið.Telja má á fingrum annarrar handar þær eignir sem komið hafa í sölu á Lynghaga seinasta árið.Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali, í síma 774 7373 eða - Áhugasamir bóki skoðun. Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi. Heimili fasteignasala – á traustum grunni í 20 ár.Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.