Guðný Ösp lgf., s. 665-8909 og fasteignasalan TORG kynnir þriggja herbergja íbúð ásamt stæði í bílageymslu við Lómasali 12 Umrædd eign er samtals skráð 104,9 m2 en þar af er geymslan 8,4 m2, og er staðsett á 4. hæð(efstu hæð) í lyftu húsi.
Eignin sem um ræðir er rúmgóð þriggja herbergja íbúð með fallegu útsýni bæði til suð-vesturs og í átt að Bláfjöllum.
Ný endurnýjað baðherbergi og gott aðgengi en lyftan fer alla leið úr bílakjallara upp að íbúðar hæð. Nánari lýsing: Forstofa: flísar á gólfi, fataskápar.
Hol: parket á gólfi.
Eldhús: parket á gólfi, ljós eldhúsinnrétting, með nýlegu helluborði og borðkrók,
fallegt útsýni frá eldhúsglugga í átt til Bláfjalla. Herbergi II: parket á gólfi og fataskápur.
Stofa- og borðstofa: parket á gólfi,
opið og bjart rými með fallegu útsýni í átt til sjávar og að Snæfellsjökli á góðviðrisdögum. Svalir snúa í suð-vestur.
Hjónaherbergi: parket á gólfi, fataskápar.
Þvottahús: flísar á gólfi, þvottahúsinnrétting með innréttingu í vinnuhæð.
Baðherbergi:
nýlega endurnýjað baðherbergi(í ágúst 2024), flísalagt á gólfi og veggjum með "walk-in sturtu", upphengdu salerni, handklæðaofn, speglaskáp með lýsingu og rúmgóðum skápum og skúffum.
Geymsla: staðsett í sameign hússins á jarðhæð.
Stæði í bílageymslu merkt íbúð 404 með rafhleðslustöð fyrir rafbíl.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla staðsett í sameign á jarðhæð.
Eignin er einstaklega vel staðsett í Salahverfinu í Kópavogi, í göngufæri við Salalaug og fallegar gönguleiðir í kring.
Nánari upplýsingar veitir: Guðný Ösp, lgf. s. 665-8909 eða gudny@fstorg.is Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali. Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.