Vinsamlegast bókið einkaskoðun hjá löggiltum fasteignasölum Foldar. Fold fasteignasala s. 5521400, kynnir: Falleg 4 herbergja íbúð á 4.hæð í fjölbýlishúsi með góðu útsýni ásamt bílskúr, miðsvæðis í Reykjavík. Alls 121,7 fm.Íbúðin sem er skráð 95,6 fm og 5,7 fm geymsla í sameign, samtals 101,3 fm s... Sýna meira
Vinsamlegast bókið einkaskoðun hjá löggiltum fasteignasölum Foldar. Fold fasteignasala s. 5521400, kynnir: Falleg 4 herbergja íbúð á 4.hæð í fjölbýlishúsi með góðu útsýni ásamt bílskúr, miðsvæðis í Reykjavík. Alls 121,7 fm.Íbúðin sem er skráð 95,6 fm og 5,7 fm geymsla í sameign, samtals 101,3 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, er miðsvæðis með gott útsýni í Háaleitishverfinu og skiptist i hol, mikið endurnýjað eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi og nýuppgert baðherbergi. Sérlega snyrtileg og vel við haldin sameign. Þvottahús og hjólageymsla í kjallara. Bílskúr er 20,4 fm með rafmagni. Nánari upplýsingar veitir Hlynur Ragnarsson, / 6248080.Nánari lýsing:Hol er bjart með eikarparketi. Fatahengi með efri skáp og skáp.Eldhús er rúmgott og var uppgert 2017. Uppgerð snyrtileg innrétting, hvítar veggflísar og gegnheil límtréssborðplata. Nýlegt helluborð, vaskur/blöndunartæki, bakaraofn og háfur. Borðkrókur og opnanlegur gluggi.Stofan er björt og rúmgóð með eikarparketi og frá henni er útgengt út á yfirbyggðar suðursvalir með glerjaðri svalarlokun sem hægt er að opna alveg. Svalarrýmið er nýlega málað og gólfið lakkað. Gott útsýni.Hjónaherbergi er með eikarparketi og fataherbergi.Barnaherbergi eru 2 með eikarparketi. Skápur er í öðru herberginu.Baðherbergi var uppgert að öllu leyti sumarið 2020. Hvít innrétting með gegnheilli límtréssborðplötu og upphengt salerni. Sturtubaðkar, vandaðar flísar á gólfi sem flæða upp á baðkar og klósettkassa og túrkís litaðar flísar yfir baði. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Handklæðaofn.Bílskúr er sérstæður með rafmagni. Rafmagns hurð og gönguhurð.Rúmgóð hjóla- og vagnageymsla. Þvottahús og þurrkherbergi.Íbúðin var mikið endurnýjuð árið 2017. Nýtt eikarparket á svefnherbergi og fataherbergi. Eikarparket á stofu og holi var pússað og lakkað og settir voru nýir gólflistar. Rafmagn var dregið í alla íbúðina á allt nema eldhús (sem búið var að gera). Nýir og vandaðir rofar og tenglar.Húsið hefur verið uppgert að sögn seljanda og var pússning endurnýjuð og húsið málað 2017. Einnig var skipt um þakjárn, gler og glugga á suður, vestur og austur hlið hússins og sett ný útihurð á stigahús. Áður höfðu skólplagnir verið endurnýjaðar, skipt um jarðveg undir bílastæði og bílastæði malbikað. Upphituð hellulögð gagnstétt með lýsingu fyrir framan húsið. Sameign sérlega snyrtileg. Stigahús teppalagt og málað (2020).Skemmtileg íbúð með góðu útsýni á góðum stað í Hvassaleitinu þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, matvöruverslun og alla þjónustu t.d. kaffihús/veitingastaði, heilsugæslu og í Kringluna. Einnig er stutt í útivistarsvæði borgarinnar eins og Fossvogdal, Öskjuhlíð/Nauthólsvík og fleira. Vel tengt almenningssamgöngum og hjólastígakerfum. Vinsamlegast bókið einkaskoðun á eða hjá fasteignasölum Foldar:Fold fasteignasala, Sóltúni 20, 105 Reykjavík. Sími 552 1400 / utan skrifstofutíma: Hlynur 624-8080, Viðar 694-1401 , Einar 893-9132, Gústaf 895-7205 og Sævar 844-1965.www.fold.is. Við erum á Facebook.