Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Ný 111,1 m2 3-4ra herbergja íbúð á 2. hæð, austurendi, í nýju fimm íbúða húsi við Liljugötu 3 í Mosfellsbæ. Íbúð 0201 - Eignin er skráð 111,1 m2, þar af íbúð 102,8 m2 og geymsla (merkt 0105) 8,3 m2. Stórar svalir ca. 15,7 m2 í suðurátt.Íbúðin skiptist í tvö sve... Sýna meira
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Ný 111,1 m2 3-4ra herbergja íbúð á 2. hæð, austurendi, í nýju fimm íbúða húsi við Liljugötu 3 í Mosfellsbæ. Íbúð 0201 - Eignin er skráð 111,1 m2, þar af íbúð 102,8 m2 og geymsla (merkt 0105) 8,3 m2. Stórar svalir ca. 15,7 m2 í suðurátt.Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, sjónvarpshol, baðherbergi/þvottaherbergi, forstofu, eldhús og stofu. Sérgeymsla í sameign. Íbúðin afhendist fullbúin með dökkum Arens innréttingum, eikar harðparket á gólfum en gólf baðherbergis og forstofu eru flísalögð. Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent straxKomið er inn í forstofu með dökkum forstofuskáp sem nær upp í loft og flísum á gólfi. Úr forstofu er komið inn í stórt og bjart rými með eikarharðparketi á gólfi. Þar er stofa, borðstofa og eldhús. Í eldhúsi er falleg dökk L-laga innrétting með AEG tækjum. LED lýsing verður undir efri skápum. Skúffur eru í neðri hluta innréttingar með ljúflokun og skápar í efri hluta innréttingar. Eldhúsinnrétting nær upp í loft. Í innréttingu er AEG blástursofn, spansuðuhelluborð ásamt viftu. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu. Á hægri hönd frá forstofu er stórt flísalagt baðherbergi/þvottaherbergi með baðinnréttingu, vegghengdu salerni, sturtu og stórri L-laga innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Sturta er flísalögð og með sturtuskilrúmi úr hertu gleri á eina hlið. Í innréttingu undir þvottavél og þurrkara er útdraganleg skúffa fyrir þvottinn sem auðveldar að ganga um vélarnar. Innrétting á baði nær upp í loft. Á vinstri hönd frá forstofu er gott hjónaherbergi með stórum dökkum fataskápum sem ná upp í loft og harðparketi á gólfi. Þar við hlið er barnaherbergi með fataskáp upp í loft og harðparketi á gólfi. Inn af stofu er gott sjónvarpshol sem hægt er að breyta í 3ja svefnherbergið (kostar 350.000 kr.). Úr stofu er gengið út á svalir í suðurátt. Íbúðinni fylgir hlutdeild í sameiginlegri vagna- og hjólageymslu. Bílastæði við húsið verða malbikuð og gönguleið að húsi verður hellulögð með snjóbræðslu.Mjög falleg og vel skipulögð 5 íbúða fjölbýlishús í byggingu á tveimur hæðum við Liljugötu 3 í Mosfellsbæ. Húsin eru teiknuð af Teiknistofu Ingimundar Sveinssonar. Hönnun íbúðanna er vel heppnuð, allar 3-4ra herbergja íbúðirnar eru endaíbúðir og inngangur er af opnum svalagangi - gluggar eru því á öllum fjórum hliðum íbúðanna sem gerir þær mjög bjartar. Tveggja herbergja íbúðirnar eru sömuleiðis mjög vel skipulagðar, gluggar eru á tveimur hliðum og ekkert rými í íbúðinni er gluggalaust. Svalir á öllum íbúðum efri hæðar eru mjög stórar eða rúmir 15 m2. Jarðhæðum fylgir sérafnotarréttur af lóð sem eru ca. 23 m2. Húsin eru byggð af Byggingafélaginu Bakka ehf sem er fjölskyldufyrirtæki með 40 ára reynslu af byggingu íbúðarhúsa. Allar íbúðirnar afhendast fullbúnar með vönduðum Arens innréttingum frá Ormsson ehf, gólfefnum og hvítum yfirfelldum innihurðum frá Birgissyni ehf, hreinlætis og blöndunartækjum frá Tengi ehf. Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á (0,3% af endanlegu brunabótamati).Allar nánari upplýsingar fást hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar í síma 586 8080.Einnig er hægt að ná í Svanþór í síma 698-8555, og Sigurð í síma 899-1987, .Fasteignasala Mosfellsbæjar, Þverholti 2, Mosfellbæ. Opið frá kl. 9-17 alla virka dagaHeimasíða Fasteignasölu MosfelsbæjarFasteignasala Mosfellsbæjar á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.