4ra herb. íbúð á 2. hæð við Leirubakka í Reykjavík. Þvottahús innan íbúðar og svalir með góðu útsýni. Húsið er steinhús byggt árið 1971. Lýsing: Hol rúmgott með hvítum flísum á gólfi. Stofa með parketti og útg. á svalir í vestur með góðu útsýni. Eldhús með plastparketti á gólfi, snyrtileg innrétting og borðkrókur. Þrjú svefnherbergi m/dúk á gólfum og skápar í tveimur herb. Baðherbergi flísalagt á gólfi og veggjum, sturta og innrétting við vask. Þvottahús innaf holi við hlið eldhúss. Í kjallara er sér geymsla ásamt sameiginl. hjóla- og vagnageymslu. Upplýsingar veitir Runólfur Gunlaugsson viðsk.fr. og lögg.fast. á Höfða s. 892 7798. runolfur@hofdi.is