Domusnova kynnir:Rými sem er nýtt sem:ÍBÚÐ AÐ LAUGAVEGI 133.Um er að ræða ósamþykkt íbúðarrými í kjallara við Laugaveg 133, 105 Reykjavík. Búið er að skipta um ofn, rafmagn endurnýjað, nýleg eldhúsinnrétting ásamt fleiru.Pípulagnir hafa verið endurnýjaðar í rými ásamt því að skólplagnir voru fóðraða... Sýna meira
Domusnova kynnir:Rými sem er nýtt sem:ÍBÚÐ AÐ LAUGAVEGI 133.Um er að ræða ósamþykkt íbúðarrými í kjallara við Laugaveg 133, 105 Reykjavík. Búið er að skipta um ofn, rafmagn endurnýjað, nýleg eldhúsinnrétting ásamt fleiru.Pípulagnir hafa verið endurnýjaðar í rými ásamt því að skólplagnir voru fóðraðar í okt 2021.Eignin er laus til afhendingar. Kaupandi getur tekið við leigusamningi en eignin er í útleigu. Þá er um að ræða að virða uppsagnarfrest skv. húsaleigulögum gagnvart leigjanda.Kaupandi getur einnig fengið eignina afhenta skv. samkomulagi fljótlega eftir kaupsamning.Húsið er 4ra hæða steypt hús byggt árið 1962.Hafið samband við Vilborgu í síma 891 8660, eða Heildarstærð eignar er 48,5 fm sem skiptist í skráð rými í kjallara hússins 44,4 fm, merkt: 00-01, svo og að auki 6,7 fm salerni í kjallara merkt: 00-03. (sjá teikningu)Sameiginlegt þvottahús í sameign þar sem er tengi fyrir þvottavél og þurrkara.Eigninni tilheyrir hlutdeild í sameign allra, húsi, lóð og hitakostnaði. Húsið var steypuviðgert og málað að utan fyrir um 8 árum síðan.Eigninni fylgir: Ísskápur, uppþvottavél, örbylgjuofn og fleira skv. samkomulagi við seljanda.Nánari lýsing eignar: Sameiginlegur inngangur, en hægt er að ganga inn að framan en einnig að aftan (norðan megin)Forstofa með máluðu gólfi. Stofa og svefnkrókur í opnu rými, málað gólf. Eldhús með nýrri hvítri innréttingu ásamt nýjum tækjum. Baðherbergi er ekki innan íbúðar, neðri skápur og sturta en er séreign íbúðar.Sameiginleg geymsla á hæðinni ásamt sameiginlegu þvottahúsi. Verið er að skipta um þak og glugga í sameign.Eignin er vel staðsett á Laugavegi og örstutt í alla helstu verslun og þjónustu.Aðkoma:Hægt er að ganga inn í húsið frá Laugavegi - en einnig er gengið er inn í gegnum port frá Laugavegi og þaðan er inngangur í íbúðina frá sameiginlegum gangi hússins í kjallara.Einnig er inngangur í húsið frá Laugavegi en þá er komið inn á 1.hæð hússins og þaðan eru tröppur niður í kjallara.Talsverður fjöldi bílastæða á baklóð sem er í eigu borgarinnar.Seljandi hefur ekki búið í eigninni og getur því ekki veitt nákvæmar upplýsingar um ástand hennar og er því væntanlegum kaupendum bent á að skoða eignina sérstaklega vel og fá jafnvel til þess fagmenn í húsaskoðun.Eignin er í göngufæri við Hlemmtorg.Nánari upplýsingar veita:Vilborg Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.8918660 / Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.