Gimli fasteignasala og Ólafur B Blöndal löggiltur fasteignasali kynna:LAUGATEIGUR 32 - GLÆSILEG 66.5 fm. 2JA HERBERGJA ÍBÚÐUm er að ræða íbúð með sér/saml.inngangi sem var gagngert endurnýjuð árið 2015. Íbúðin er skráð 66,5 fm brúttó og er þar af geymsla á gangi í forstofu 6,2 fm. NÁNARI LÝSING:Fors...
Sýna meira
Gimli fasteignasala og Ólafur B Blöndal löggiltur fasteignasali kynna:LAUGATEIGUR 32 - GLÆSILEG 66.5 fm. 2JA HERBERGJA ÍBÚÐUm er að ræða íbúð með sér/saml.inngangi sem var gagngert endurnýjuð árið 2015. Íbúðin er skráð 66,5 fm brúttó og er þar af geymsla á gangi í forstofu 6,2 fm. NÁNARI LÝSING:Forstofa mjög rúmgóð með flísum á gólfi og miklum nýlegum skápum sem fylgja þessari íbúð ásamt sérgeymslu. (umgengnisréttur miðhæðar um forstofu vegna geymslu sem fylgir þeirri íbúð). Hol/gangur með parketi. Eldhúsið er rúmgott með nýlegri svartri fallegri innréttingu, góð tæki, parket og borðaðstaða. Góður gluggi til suðurs út í garðinn. Svefnherbergi er mjög rúmgott með parketi og lausum skáp. Stofan er rúmgóð og björt með parketi og góðum gluggum til suðurs og austurs út í garðinn. Baðherbergið er rúmgott, filteraðir og lakkaðir veggir og flísar á gólfi. Plássgóð flísalögð sturta. Rými innaf með salerni og þvottaaðstöðu. Gólfefni er ljóst parket á aðalrýmum, flísar á forstofu og baðherbergi.Garðurinn er sameiginlegur með jarðhæð og risi. Miklir sólpallar og girðingar, allt endurnýjað. Mjög fallegur trjágróður og berjarunnar. Afgirt grillaðstaða með skjólveggjum.Að sögn eigenda hafa átt sér stað eftirtaldar endurnýjanir á sameign árið 2016:Skolplagnir innan og utanhúss. Drenlagnir endurnýjaðar. Hellulögn endurnýjuð og hiti að hluta í stéttum. Timburpallar og grindverk. GeyÖll málning hreinsuð af húsinu og það filterað. Húsið endurmálað. Allt gler og glerlistar á jarðhæð og miðhæð endurnýjað. Aðaltafla rafmagns endurnýjuð. Hitalagnir. Endurnýjun íbúðar að innan framkvæmd árið 2015:Allar innréttingar. Gólfefni, Tæki í eldhúsi og á baði. Hurðir. Raflagnir, gler, glerlistar, neysluvatnslagnir og fl. ATH. ÍBÚÐIN ER Í LEIGU OG ER LAUS TIL AFHENDINGAR E.CA 6 MÁNUÐI EÐA FYRR. KAUPANDI GETUR YFIRTEKIÐ LEIGUTEKJUR VIÐ KAUPSAMNING .Nánari upplýsingar veitir Ólafur Björn Blöndal, löggiltur fasteignasali í síma 6-900-811, milli kl. 9:00 og 19:00 alla virka daga. 6900811, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnaði því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.