Eignin er seld og er í fjármögnunarferli.Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega glæsilega, bjarta og mjög rúmgóða 3ja herbergja risíbúð með gluggum í 4 áttir og stórum kvistum í mjög fallegu, nýviðgerðu og steinuðu fjórbýlishúsi á þessum eftirsótta stað í Laugardalnum. Eigni...
Sýna meira
Eignin er seld og er í fjármögnunarferli.Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega glæsilega, bjarta og mjög rúmgóða 3ja herbergja risíbúð með gluggum í 4 áttir og stórum kvistum í mjög fallegu, nýviðgerðu og steinuðu fjórbýlishúsi á þessum eftirsótta stað í Laugardalnum. Eignin er skráð 48,0 fermetrar skv. Fasteignaskrá en er mun stærri að gólffleti eða um 75,0 fermetrar. Húsið var viðgert og steinað að utan árið 2020 og lítur mjög vel út. Á sama tíma var skipt um allt gler og alla glugga í íbúðinni, allt gler og alla glugga í stigahúsi og sameign í kjallara og allir kvistir á þaki klæddir upp á nýtt. Klóaklagnir undir húsi og út í götu hafa verið endurnýjaðar. Raflagnir og rafmagnstafla í íbúðinni eru nýlega endurnýjuð. Eldhúsinnréttingar og tæki eru nýleg.Íbúðin er mjög vel skipulögð og afar björt með stórum kvistum og stórum gluggum.Fasteignamat ársins 2023 verður 41.450.000.-Lýsing eignar:Stigapallur, fyrir framan íbúð er teppalagður og með fatahengi. Forstofa, parketlögð og með fataskápum.Baðherbergi, með glugga, steinlagt gólf og flísalagðir veggir. Innrétting, vegghengt wc og baðkar með sturtuaðstöðu.Stofa, mjög rúmgóð, björt og parketlögð með útgengi á rúmgóðar svalir til suðurs þaðan sem nýtur útsýnis yfir hverfið.Eldhús, parketlagt og með glugga til norðurs. Fallegar hvítar innréttingar með viðarborðplötum og speglum á milli skápa. Innbyggð uppþvottavél og nýleg tæki.Barnaherbergi, parketlagt og rúmgott. Hjónaherbergi, parketlagt og rúmgott með fatahengi og gluggum í tvær áttir.Geymsluris, er yfir íbúðinni og nýtist mjög vel.Súðargeymslur eru innaf sumum rýmum íbúðarinnar og nýtast mjög vel sem geymslur.Í kjallara hússins er:Sameiginlegt þvottaherbergi, mjög stórt með sértenglum fyrir hverja íbúð, lakkað gólf og gluggi til suðurs.Húsið að utan, var allt viðgert og steinað upp á nýtt árið 2020 og lítur mjög vel út. Árið 2020 var skipt um allt gler og alla glugga í íbúðinni, allt gler og alla glugga í stigahúsi sem og í sameign í kjallara og allir kvistir á þaki hússins klæddir upp á nýtt.Lóðin, er fullfrágengin með stórri og skjólsælli tyrfðri flöt til suðurs og er í óskiptri sameign allra íbúða í húsinu.Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á mjög eftirsóttum stað við Laugardalinn þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, Sundlaug Laugardals, íþróttasvæði, fallegar gönguleiðir o.fl. Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu