Langahlíð 6 - Mikið uppgerð 2ja herbergja íbúð í kjallara í litlu fjölbýlishúsi í Glerárhverfi - stærð 40,1 m²- Mjög góð fyrsta íbúð - ** Eignin er seld með fyrirvara **Eignin skiptist í Forstofu/hol, eldhús og stofu í opnu rými, svefnherbergi og geymslu.Gengið er inn um sameiginlegan inngang á norð...
Sýna meira
Langahlíð 6 - Mikið uppgerð 2ja herbergja íbúð í kjallara í litlu fjölbýlishúsi í Glerárhverfi - stærð 40,1 m²- Mjög góð fyrsta íbúð - ** Eignin er seld með fyrirvara **Eignin skiptist í Forstofu/hol, eldhús og stofu í opnu rými, svefnherbergi og geymslu.Gengið er inn um sameiginlegan inngang á norðurhlið hússins og niður teppalagðan stiga. Forstofa/hol er með ljósu harð parketi á gólfi og opnu fatahengi. Af holinu er opið inn í geymslu með harð parketi á gólfi. Eldhús og stofa eru í opnu rými með ljósu harð parketi á gólfi. Eldhúsinnréttingin er nýleg, hvít, með grárri bekkplötu og gráum þiljum á milli skápa. Lítill ísskápur er innfelldur í innréttinguna og fylgir með við sölu eignar. Svefnherbergið er með ljósu harð parketi á gólfi og þreföldum lausum fataskáp. Baðherbergi er með gráum flísum á gólfi og hluta veggja, hvítri innréttingu, handklæðaofni, upphengdu wc, walk-in sturtu og opnanlegum glugga. Tengi er fyrir þvottavél inn á baðherberginu. Annað- Eignin var mjög mikið endurnýjuð fyrir um 2 árum, ný gólfefni, innihurðar, eldhúsinnrétting og baðherbergi. - Nýlegur dyrasími- Verið er að endurnýja rafmagnstöflu fyrir húsið.- Húsið var múrviðgert og málað að utan sumarið 2020- Frárennsli var endurnýjað frá húsi fyrir rúmum 10 árum- Pappi á þaki var endurnýjaður fyrir rúmum 10 árum. - Sér rafmagn og sér hitaveita- Búið er að taka inn ljósleiðara