Miklaborg kynnir: Fallega og bjarta þriggja herbergja íbúð á neðri hæð í tvíbýli með bílskúr. Sérinngangur. Þvottahús á hæðinni. Fallegur garður, stór afgirt verönd í suður með aðgengi út í garð. Nánari upplýsingar veitir Óskar í síma 691-1931 eða Eignin er skráð alls 138,8 fm. og skiptist í íbúð 1...
Sýna meira
Miklaborg kynnir: Fallega og bjarta þriggja herbergja íbúð á neðri hæð í tvíbýli með bílskúr. Sérinngangur. Þvottahús á hæðinni. Fallegur garður, stór afgirt verönd í suður með aðgengi út í garð. Nánari upplýsingar veitir Óskar í síma 691-1931 eða Eignin er skráð alls 138,8 fm. og skiptist í íbúð 106,8 fm og bílskúr 32 fm. Nánari lýsing:Gengið er inn um sérinngang í anddyri. Þaðan er gengið inn í hol sem tengir öll rými íbúðar, parket á gólfum. Á vinstri hönd er að finna bæði hjónaherbergi sem og annað rúmgott svefnherbergi ásamt baðherbergi og aðgengi að sameiginlegu þvottahúsi sem ekki er inni í fermetratölu. Í báðum herbergjum eru innbyggðir skápar og parket á gólfum. Baðherbergi er flísalagt með hvítri innréttingu, sturtu og glugga. Þvottahúsið, sem er sameiginleg með efri hæð, er með skolvaski og hillum. Úr þvottahúsi er útgangshurð. Í eldhúsi er eldri eldhúsinnrétting borðkrókur og gluggi út í garð. Parket á gólfi. Á hægri hönd úr holi er gengið inn í rúmgóða og bjarta stofu/borðstofu með glugga á þrjá vegu. Úr stofu er gengið út á stóra verönd sem er afgirt með skjólvegg. Garður er fallegur og gróinn sem nýtist jarðhæðinni einkar vel.Bílskúr er rúmgóður, upphitaður með bæði inngangshurð og rafdrifinni bílskúrshurð. Tveir þakgluggar og lítið geymsluloft yfir hluta bílskúrs.Verið er að lagfæra tröppur á húsinu utanhúss ásamt því að skipta um þakrennur sem eigandi efri hæðar greiðir fyrir. Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen, lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 691-1931-