Guðbergur og fasteignasalan Bær kynna: Gott sumarhús(heilsárshús) við Lækjabotnaland. húsið er byggt 2006 og er á fallegum og rólegum stað( ca 10 mín keyrsla frá Árbænum). Húsið er 50 fm með tveimur svefnherbergjum, stofu, eldhúsi, svefnlofti, geymslu, geymsluskúr og góðum palli með heitum pott.
Nánari lýsing: Anddyri með fatahengi. Stofa er með parket á gólfi og útgengi á sólpall. Rúmgott eldhús með góðu skápaplássi, keramic helluborð, vifta, bökunarofn, tengi fyrir ísskáp, tengi fyrir uppþvottavél og borðkrókur. Svefnherbergin eru 2 með parket á gólfum og annað með fataskáp. Geymsluherbergi með útgang er inn af öðru svefnherberginu. Baðherbergi með sturtuklefa, innréttingu og klósetti. þvottaherbergi með tengi fyrir þvottavél, skolvaskur og vinnuborð. Svefnloft er rúmgott og með glugga. Góðir pallar og heiturpottur á pallinum. Geymsluskúr er einnig á lóðinni.
Fallegur og rólegur staður, fallegt útivistasvæði og stutt í þjónustu. Hús sem hentar vel fyrir þá sem vilja vera í rólegu umhverfi og í tengingu við náttúruna.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbergur Guðbergsson löggiltur fasteignasali s 8936001 beggi@fasteignasalan.is