Guðrún Antonsdóttir fasteignasali og Lind fasteignasala kynna rúmgóða 4ra herbergja íbúð á jarðhæð í reisulegi húsi með sér inngangi á mjög vinsælum stað í vesturbænum
Finnur Jónsson listmálari lét reisa húsið árið 1953 sem heimili og vinnustofu. Árið 1996 var húsið endurnýjað að miklu leyti og skipt upp í þrjár íbúðir, eins og það er nýtt í dag.Eignin skiptist í: Forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Nánari lýsing: Forstofa með fataskáp, hengi og flísum á gólfi.
Eldhús með fallegri viðar innréttingu með efri og neðri skápum, bakaraofn og tengi fyrir uppþvottavél. Keramik helluborð og háfur. Parket á gólfi.
Stofan er björt og opin með fallegum bogaglugga. Parket á gólfi. Gengið er út á verönd frá stofu sem snúa í suður.
Svefnherbergin er þrjú með parketi á gólfi.
Baðherbergið er með innréttingu undir og við handlaug, baðkari, sturtuklefa, salerni, opnanlegum glugga og flísum á gólfi og veggjum að mestu.
Þvottahús er sér gengið inn frá eldhúsi með flísum á gólfi og opnanlegum glugga.
Geymsla er innan íbúð, gengið inn frá forstofu, rýmið er undir súð
Samkvæmt áður auglýstum eignum við Kvisthaga 6
* Skólp og dren endurnýjað árið 1996.
* Þak yfirfarið og viðgert að hluta 2022
Eignin er vel staðsett í Vesturbæ Reykjavíkur. Stutt í leik- og grunnskóla. Vesturbæjarlaug, verslanir, veitingahús og útivistarsvæði við Ægisíðu í göngufæri.
Frekari upplýsingar veitir Guðrún Antonsdóttir fasteignasali í síma 621-2020 eða á gudrun@fastlind.is