FANNBERG FASTEIGNASALA EHF, sími: 487-5028
EINBÝLISHÚS OG BÍLSKÚR VIÐ KRÓKTÚN 1 Á HVOLSVELLI.
Eignin er byggð úr steinsteypu, húsið árið 1976 og skúrinn árið 1984. Ytra byrði er múrað og málað. Eignin telur:
Anddyri með flísum á gólfi og skáp.
Gang með parketi á gólfi.
Stofu og borðstofu, með parketi á gólfi og panelklæddu lofti, þar er arinn.
Eldhús með parketi á gólfi og upprunalegri innréttingu.
Fjögur svefnherbergi með parketi á gólfum,innbyggður skápur er í hjónaherberginu og lausir skápar fylgja í tveimur herbergjum.
Baðherbergi með flísum á veggjum og gólfi, sturtu og innréttingu.
Gestasalerni með flísum á gólfi.
Þvottahús, sem jafnframt er bakinngangur í húsið með linoleum dúk á gólfi.
Bílskúrinn er með innkeyrsluhurð með opnara og tveimur göngudyrum. Í honum eru
tvær geymslur og þar er salerni. Við húsið er verönd með heitum potti, gróinn garður, steyptar gangstéttir og bifreiðastæði.
Kaupendur greiða engin umsýslugjöld
Allar nánari upplýsingar veitir Ágúst Kristjánsson lgf, gsm 893-8877 og netfang: agust@fannberg.is.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.