Kotabyggð 6 - Vel skipulagt einbýlishús á stórri eignarlóð í Vaðlaheiði - Stærð 49,6 m²
Eignin er sérlega skemmtilega staðsett gegnt Akureyri í grónu umhverfi.** Sér aðkeyrsla er frá stofnvegi að húsinu og stendur því eignin nokkuð sér og frá öðrum sumarhúsum á svæðinu.**
Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, tvö svefnherbergi, baðherbergi, geymslu og lítið geymsluloft. Einnig er geymslupláss undir sólpalli.Forstofa er með opnu fatahengi og vínylparketi á gólfi. Við hlið forstofu er lítil
geymsla.
Eldhús er með ágætri innréttingu, með stæði fyrir uppþvottavél, þar er nú þvottavél. Parket er á gólfi.
Stofa er með skemmtilegum gluggum til vesturs með miklu útsýni. Gengið er út á stóra timburverönd frá stofu. Parket er á gólfi
Svefnherbergin eru tvö, í öðru þeirra er koja. Parket á gólfum.
Baðherbergi er með sturtuklefa, wc og vaski. Opnanlegur gluggi. Dúkur er á gólfi.
Annað:
- Eignarlóð að stærð 4296,0 m².
- Heitur pottur staðsettur í grónu umhverfi á afar skjólsælum og skemmtilegum stað.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.