Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Klettaborg 28 íbúð 204 - Skemmtileg 2-3ja herbergja íbúð með sér inngangi á efri hæð í norður enda - stærð 71,2 m²Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í alrými, svefnherbergi, baðherbergi, geymslu og þvottahús.
Forstofa er með flísum á gólfi.
Eldhús, spónlögð eikar innrétting með flísalagðri bekkplötu og flísum á milli skápa. Stæði er í innréttingu fyrir ísskáp og uppþvottavél. Borðstofa með glugga til vesturs.
Stofa og eldhús eru í opnu rými þar sem parket er á gólfi. Úr stofu er gengið út á vestur svalir.
Svefnherbergi er með parketi á gólfi og stórum eikar fataskáp. Herbergið er skv. teikningum 10,9 m² að stærð.
Geymsla hefur verið notuð sem svefnherbergi. Þar er parket á gólfi og stór opnanlegur gluggi. Geymslan er skv. teikningum 5,4 m² að stærð.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, spónlagðri eikar innréttingu, upphengdu wc, handklæðaofni og baðkari með sturtutækjum og glervæng.
Þvottahús er með flísum á gólfi, bekk með vask og hillum.
Annað- Íbúðin er í norður-enda hússins á efri hæð.
- 5,2 m² svalir til vesturs, skemmtilegt útsýni.
- Sameiginleg geymsla/inntaksrými er undir útitröppum.
- Eignin er í stuttu göngufæri við háskólann, glerártorg o.fl.