Miklaborg kynnir: 78,6 m2 þriggja herbergja sérhæð við Köldukinn 24 í Hafnarfirði. Eignin skiptist í stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsluloft. Frábært skipulag.Gólfhiti. Sérinngangur.Virkilega falleg og mikið endurbætt eign með fallegu útsýni!Nánari upplýsingar veitir...
Sýna meira
Miklaborg kynnir: 78,6 m2 þriggja herbergja sérhæð við Köldukinn 24 í Hafnarfirði. Eignin skiptist í stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsluloft. Frábært skipulag.Gólfhiti. Sérinngangur.Virkilega falleg og mikið endurbætt eign með fallegu útsýni!Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen, lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 691-1931 eða .Nánari lýsing:Gólfefni: hafa nýlega verið endurnýjuð. Teppi á gangi og tröppum og fallegt viðarparket á alrými. Baðherbergi og þvottahús eru flotuð og flísalögðGengið er um sér inngang upp í rishæð eignarinnar. Af stigapalli er komið inn á gang með ágætu fatahengi við hlið inngangs. Á vinstri hönd eru eldhús og stofa og er þaðan afar fallegt útsýni. Eldhúsið er með fallegri svartri innréttingu á tveimur veggjum, innbygðri uppþvottavél, góðum ofni og gas helluborði. Á móti inngangi er rúmgott svefnherbergi. Hægra megin við það herbergi er annað gott svefnherbergi með fatahengi og góðum skúffum. Baðherbergi er með flísum á veggjum, flísalögðum sturtuklefa, hvítri innréttingu og upphengdu salerni. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi. Þvottahús með tengi fyrir þvottavél og þurrkara er innan íbúðar. Skriðloft er yfir allri íbúðinni.Eignin hefur verið endurnýjuð töluvert á seinustu árum. Raf- og fráveitulagnir innan íbúðar hafa verið endurnýjaðar að hluta (að sögn fyrri eigenda) auk þess sem gólfhiti var settur í íbúðina. Eldhús og baðherbergi voru einnig endurnýjað í tíð fyrri eiganda. Hús og þak var málað 2016. Frá árinu 2020 hefur verið lagt nýtt parket og og teppi lagt á inngangsrými og stiga. Þá var á vegu húsfélagsins húsið drenað á norður og vestur hlið ásamt því að bílastæði voru steypt og byggður pallur við húsið. Hiti er á sér mæli. Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen, lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 691-1931-