Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega, vandaða og vel skipulagða 122,4 fermetra 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í vönduðu og glæsilegu fjölbýlishúsi með lyftu, vel staðsettu í miðborg Reykjavíkur. Sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu fylgir íbúðinni. Íbúð... Sýna meira
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega, vandaða og vel skipulagða 122,4 fermetra 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í vönduðu og glæsilegu fjölbýlishúsi með lyftu, vel staðsettu í miðborg Reykjavíkur. Sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu fylgir íbúðinni. Íbúðinni fylgja bæði hellulögð og skjólsæl verönd til suðurs og svalir til norðurs með viðarklæddu gólfi. Eignin er í leigu til 1. desember 2024Mikið er lagt upp úr hönnun hússins, jafnt að utan sem innan. Húsið er einangrað og klætt að utan með viðhaldslitlum og fallegum efnum. Byggingin er U-laga og rammar inn sameiginlegan skjólgóðan sameiginlegan suður garð.* Sérsmíðaðar vandaðar innréttingar úr svartbæsaðri eik, sem ná upp í loft* Gólhitalagnir eru í íbúðinni með sér stýringu fyrir hvert rými* Bæði svalir til norðurs með viðarklæddu gólfi og hellulögð og skjólsæl verönd til suðurs* Borðplötur úr kvartsteini á eldhúsinnréttingu og eyju í eldhúsi og á innréttingu í baðherbergi* Myndavélakerfi er við inngang íhúsið og myndavéladyrasími, rafmagnsopnun með talnastýringu er á hurðum í sameign.* Sameign hússins er mjög snyrtileg og bílakjallari er lokaður og upphitaður. Tengi fyrir hleðslustöð er komið að sérbílastæði íbúðarinnarNánari lýsing:Forstofa, parketlögð og rúmgóð með miklum fataskápum. Barnaherbergi, stórt, parketlagt og með fataskápum.Hjónaherbergi, stórt, parketlagt og með miklum fataskápum. Úr hjónaherbergi er útgengi á hellulagða og skjósæla verönd til suðurs.Baðherbergi, rúmgott, flísalagt gólf og veggir, handklæðaofn, vegghengt wc, stór flísalögð sturta með sturtugleri og innrétting með quartz á borðum.Þvottaherbergi, rúmgott og flísalagt með miklum innréttingum með vinnuborði, vaski og stæðum fyrir vélar í vinnuhæð. Samliggjandi stofur, parketlagðar og stórar með innfelldri lýsingu í loftum að hluta.Eldhús, opið við stofur og með mjög fallegum og miklum dökkbæsuðum viðarinnréttingum með flísum á milli skápa, kvartsteini á borði, tveimur innbyggðum ísskápum, innbyggðri uppþvottavél og spanhelluborði. Stór eyja er í eldhúsi með kvartsteini á borði, vaski og áfastri borðaðstöðu. Úr eldhúsi og stofum er útgengi á rúmgóðar svalir til norðurs með viðarklæddu gólfi og glerhandriði.Í kjallara hússins eru:Sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu þar sem lagt hefur verið fyrir rafhleðslustöð. Stæðið er merkt B3.Sérgeymsla, 5,6 fermtetrar að stærð er vel staðsett innaf bílastæði í bílageymslu.Á 1. hæð hússins eru:Sameiginleg hjólageymsla, með útgengi á baklóð.Sameiginlegt líkamsræktarrými, er innaf hjólageymslu og er það með tækjum.Sameiginleg mjög falleg lóð til suðurs með hellulögn og tyrfðum flötum.Staðsetning eignarinnar er virkilega góð í hjarta miðborgarinnar þaðan sem stutt er í alla þjónustu, veitingahús, söfn o.fl. Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu