Gimli fasteignasala og Daði Runólfsson kynna bjarta og rúmgóða 2ja herbergja íbúð á 1. hæð í hinu vinsæla VR-húsi við Hvassaleiti 56, íbúð fyrir 63 ára og eldri sem getur verið laus við kaupsamning.Smellið hér til þess að skoða myndband af eigninniEignin er skráð 72,7 fm og samanstendur af anddyri, ... Sýna meira
Gimli fasteignasala og Daði Runólfsson kynna bjarta og rúmgóða 2ja herbergja íbúð á 1. hæð í hinu vinsæla VR-húsi við Hvassaleiti 56, íbúð fyrir 63 ára og eldri sem getur verið laus við kaupsamning.Smellið hér til þess að skoða myndband af eigninniEignin er skráð 72,7 fm og samanstendur af anddyri, eldhúsi, stofu/borðstofu, svefnherbergi og geymslu í kjallara. Útgengi er á hellulagða verönd úr stofu. Sameiginlegt þvottahús fyrir íbúðir á gangi er á hæðinni. Mjög gott aðgengi er að íbúðinni. Í húsinu er starfrækt ýmis afþreying og tómstundastarf á vegum félagsstarfs Reykjavíkurborgar. Góður matsalur þar sem hægt að fá heitan mat alla daga. Í húsinu er jafnframt rekin hárgreiðslu- og fótaaðgerðastofa, leikfimisalur og föndurstofa. Húsvörður er í húsinu og næg bílastæði fyrir utan. Einstaklega vel staðsett í örstuttu göngufæri við Kringluna, Borgarleikhúsið og Borgarbókasafnið með allri sinni þjónustu, verslun og afþreyingu.NÁNARI LÝSING:Gengið er inn í íbúð beint af inngangshæð hússins án þrepa. Sameiginleg aðstaða fyrir íbúa hússins er á sömu hæð og íbúðin.Forstofa: Stór fataskápur og parket á gólfi. Eldhús: Hvít innrétting, parket á gólfi, opið inn í stofu og gott eldhúsborð.Stofa/borðstofa: Rúmgóð og björt, parket á gólfi og þaðan er gengið út á verönd sem snýr í suðvestur. Svefnherbergi: Stór fataskápur og korkflísar á gólfi.Baðherbergi: Sturtuklefi, hvít innrétting og flísalagt.Þvottahús: Er á sömu hæð, sameiginlegt með öðrum íbúðum á gangi. Nýleg þvottavél og þurrkari.Geymsla: Rúmgóð sér geymsla (7,7 fm) fylgir íbúðinni í kjallara hússins.Verönd: Útgengi er á hellulagða verönd úr stofu með fallegri grasflöt og gróðri fyrir framan.Einstaklega vel staðsett íbúð í húsi þar sem hægt er að fá mikla þjónustu. Örstutt meðal annars í Kringluna, Borgarleikhúsið og Austurver.Eignin Hvassaleiti 56 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 203-2203, birt stærð 72,7 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-05, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi.Nánari upplýsingar veitir Daði Runólfsson löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6981164, tölvupóstur Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta. Gimli, gerir betur...Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur: Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.