Hrafnkell á LIND kynnir glæsilega og nýlega uppgerða fimm herbergja íbúð með fallegu útsýni.Íbúðinni er á 4. (efstu) hæð ásamt íbúðarherbergi í kjallara og bílskúr í sérstæðri bílskúrslengju.Stórt og bjart alrými með opnu eldhúsi með góðri eldhúseyju. Þvottaaðsta innan íbúðar.Stutt í skóla, leikskól... Sýna meira
Hrafnkell á LIND kynnir glæsilega og nýlega uppgerða fimm herbergja íbúð með fallegu útsýni.Íbúðinni er á 4. (efstu) hæð ásamt íbúðarherbergi í kjallara og bílskúr í sérstæðri bílskúrslengju.Stórt og bjart alrými með opnu eldhúsi með góðri eldhúseyju. Þvottaaðsta innan íbúðar.Stutt í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.Nánari upplýsingar veitir Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali, í síma 690 8236, tölvupóstur .Eignin skiptist í: anddyri, stofu og eldhús í opnu rými, 4 svefnherbergi innan íbúðar, baðherbergi, íbúðarherbergi í kjallara, geymslu og bílskúr.Íbúðarrýmið er skráð 128 fm hjá Þjóðskrá Íslands, íbúðarherbergið 13,6 fm, geymslan 7,4 fm og bílskúrinn 20,7 fm, samtals 169,7 fm.Íbúðin er laus til afhendingar fljótlega.*Meðfylgjandi grunnteikning endurspeglar núverandi skipulag ekki að fullu. Eldhúsið hefur verið fært.Nánari lýsing: Sameignin er mjög snyrtileg og öll til fyrirmyndar.Komið er inn í parketlagt anddyri með fataskápum. Stofan og borðstofan eru samliggjandi og mynda mjög opið og bjart rými og útgengt á góðar vestursvalir með fallegu útsýni. Opið eldhús er með fallegri L-laga innréttingu með góðu skápaplássi og miklu vinnrými. Skápar að hluta upp í loft, ofn í góðri vinnuhæð, steinn á borðum, innfelldur ísskápur og frystir ásamt innfelldri uppþvottavél. Vola blöndunartæki. Eldhúseyja með góðu skápa- og skúffuplassi, helluborð ásamt fallegum gufugleypi. Parket á gólfi.Fjögur svefnherbergi eru innan íbúðar og er öll parketlögð og hjónaherbergið er með fataskáp. Gluggar til austurs.Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með innréttingu og góðri Walk-In sturtu. Gólfhiti á baðherbergi og innfelld blöndunartæki.. Stór skápur á ganginum og í hluta af honum er stæði og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Íbúðarherbergi í kjallara, sem getur nýst sem íbúðarherbergi eða vinnuaðstaða. Herbergið er með lausum teppaflísum, 13,6fm., með aðgengi að sameiginlegu baðherbergiGeymslan er með flísalögðu gólfi. 7,4fm.Bílskúrinn er með flísalögðu gólfi, rafmagni, heitu og köldu vatni. 20,8fm. Hverjum bílskúr fylgir sérafnotaréttur af stæði við bílskúrshurð.HTH innréttingar í eldhúsi og á baði með stein frá S. Helgason. Vola innfeld blöndunartæki á báðum stöðum.Öll tæki í eldhúsi, ofn, helluborð, frystiskápur, ísskápur, uppþvottavél og háfur upphengdur eins og ljós, allt frá Ormson.Fljótandi parket er á öllu nema baðherbergi sem er flísalagt. Gólfhiti inni á baðherbergi.Sameiginlegt þvottahús í kjallara, hver íbúð með sín eigin tæki. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.Sameiginleg snyrting í kjallara.Við Hvassaleiti 30 eru 8 íbúðir og allar 5herb. í svipaðri stærð.Heildarhúsið Hvassaleiti 28 - 30 eru 16 íbúðir í heild og allar íbúðir 5herb. í kringum 170fm. Heildarhúsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin.Hvassaleiti 30, 103 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 04-01, fastanúmer 203-1579 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.Eignin Hvassaleiti 30 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 203-1579, birt stærð 169.8 fm.Nánari upplýsingar veitir Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali, í síma 690 8236, tölvupóstur .-----------------------------------------------------------------------Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.