Heimili fasteignasala, s: 530-6500, kynnir til sölu fallega þriggja herbergja íbúð á þriðju (efstu) hæð í ágætu fjölbýli við Hrísrima í Grafarvogi. Eignin er skráð 122,6 fm, þar af íbúðarrými 79,9 fm, geymsla 7,6 fm og stæði í lokaðri bílageymslu 35,1fm, og skiptist í anddyri, baðherbergi, tvö svef... Sýna meira
Heimili fasteignasala, s: 530-6500, kynnir til sölu fallega þriggja herbergja íbúð á þriðju (efstu) hæð í ágætu fjölbýli við Hrísrima í Grafarvogi. Eignin er skráð 122,6 fm, þar af íbúðarrými 79,9 fm, geymsla 7,6 fm og stæði í lokaðri bílageymslu 35,1fm, og skiptist í anddyri, baðherbergi, tvö svefnherbergi og rúmgóða stofu með útgengi á suðvestur svalir. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð, m.a. gólfefni, eldhús og baðherbergi og aukin lofthæð er yfir hluta íbúðarrýmis. Nánari lýsing.Komið er inn í opið anddyri með nýjum fataskáp.Stofan er björt með stórum gluggum, aukinni lofthæð og útgengi á suðvestur svalir.Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni. Hjónaherbergi með nýlegum fataskáp. Í barnaherberginu er risloft sem samsvarar stærð baðherbergis í gólfflet,i sem hægt er að nýta á ýmsan hátt.Eldhús með uppgerðri innréttingu (sprautu lökkuð) og pláss fyrir borðkrók. Núverandi skipulag er frábrugðið samþykktum teikningum þar sem eldhús hefur verið fært frá upphaflegri staðsetningu.Baðherbergið er með uppergerðri innréttingu, flísalagt með upphengdu salerni og opinni sturtu. Þá er innrétting fyrir þurrkara og þvottavél á baðherberginu, Nýlegt ljóst parket er á allri íbúðinni sem og nýlegar innihurðir.Á neðstu hæðinni er sér geymsla (7,6 fm.) og sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu.Húsið var málað og múrviðgert fyrir ca. fimm árum síðan. Falleg og vel skipulögð eign í grónu hverfi þar sem stutt er í ýmsa þjónustu sem og grunn- og leikskóla. Nánari upplýsingar veitir Steinunn Ósk Larsen, löggildur fasteignasali s: 848-2671, Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi. Heimili fasteignasala – á traustum grunni í 20 ár.Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.