Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega, bjarta og vel skipulagða 155,0 fermetra 4ra herbergja íbúð með tveimur baðherbergjum í góðu fjölbýlishúsi við Holtsveg í Garðabæ.
Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, búr, þvottaherbergi með glugga, tvö barnaherbergi, hjónaherbergi og tvö baðherbergi sem bæði eru með glugga.
Lýsing eignar:Forstofa, mjög rúmgóð, gluggi og innbyggðir miklir fataskápar.
Hol, parketlagt og með útgengi á svalir/verönd til suðurs.
Stofa, parketlögð, björt og rúmgóð.
Eldhús, parketlagt og bjart með góðum gluggum og stórri borðaðstöðu. Fallegar svartbæsaðar innréttingar úr eik með innbyggðri uppþvottavél og ísskáp með frysti. Eyja með helluborði og hangangi háfi yfir.
Búr, innaf eldhúsi, er parketlagt og með hillum.
Þvottaherbergi, með glugga, flísalagt gólf, innrétting með stæðum fyrir vélar í vinnuhæð og góðir skápar.
Baðherbergi I, flísalagt gólf og veggir, vegghengt wc, miklar innréttingar og flísalögð sturta með sturtugleri.
Barnaherbergi I, parketlagt og stórt með fataskápum.
Barnaherbergi II, parketlagt og með fataskápum.
Hjónaherbergi, stórt, parketlagt og með útgengi á svalir / verönd til suðurs.
Baðherbergi II, innaf hjónaherbergi, er með glugga. Flísalagt gólf og veggir, vegghengt wc, miklar innréttingar og flísalögð sturta með sturtugleri.
Fataherbergi, innaf baðherbergi er flísalagt og með glugga og innréttingum.
Í kjallara hússins eru:Sérgeymsla, sem er 9,9 fermetrar að stærð, loftræst og með góðri lofthæð.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla, með útgengi á baklóð hússins.
Húsið að utan lítur vel út og engar framkvæmdir eru fyrirhugaðar við það.
Lóðin er fullfrágengin með hellulögðum upphituðum stéttum fyrir framan hús, tyrfðum flötum, trjárgróðri og miklum fjölda bílastæða á malbikuðu plani.
Staðsetning eignarinnar er mjög góð á eftirsóttum og skjólsælum stað neðst í Urriðaholtinu og á móti suðri þaðan sem stutt er í verslanir, þjónustu, leikskóla, skóla, fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði og út á aðalbraut.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is