Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali thordis@lindinfasteignir.is kynna: Hólsvegur 7, Eskifirði.Efri Hóll. Hlýlegt og fallegt, talsvert endurnýjað og vel viðhaldið einbýli með 3 svefnherbergjum og baðherbergi á efstu hæð. Á aðalhæð hússins er gott eldhús með flottu útsýni. Einnig 2 samliggjandi stofur, gangur og forstofa. Geymsluskúr/vinnuskúr er við húsið. Við innganginn í húsið er stór sólpallur með skjólveggjum. Góður kjallari sem hefur verið gerður að snyrtilegum vinnustofum er undir húsinu en þar er einnig þvottaaðstaða. Húsið stendur á 380 fermetra eignarlóð. Hitaveita er í húsinu.