FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028
ÍBÚÐ Í PARHÚSI VIÐ HÓLAVANG 3A Á HELLU.
Húsið er byggt úr timbri og er klætt að utanverðu með standandi stálklæðningu. Liggjandi timburklæðning er við útihurð. Eignin telur:
Anddyri með dúk á gólfi.
Sambyggða stofu og eldhús með parketi á gólfi og vandaðri innréttingu. Hurð er þaðan út í garðinn.
Baðherbergi með dúk á gólfi, sturtu, innréttingu og handklæðaofni.
Tvö svefnherbergi með parketi á gólfum, skápur er í hjónaherberginu.
Þvottahús, með dúk á gólfi og innréttingu. Yfir íbúðinn er
geymsluloft og við hana er
verönd úr timbri með skjólsveggjum. Við húsið er steypt stétt, bifreiðastæði með bundnu slitlagi og gróin lóð. Í garðinum er 10 fm
útigeymsla, sem er járnklætt timburhús. Einnig eru skjólveggir úr timbri í garðinum.
Eignin er staðsett á skjólgóðum stað í elsta hluta Hellukauptúns.
Allar nánari upplýsingar veita:
Guðmundur Einarsson lgf í síma: 863-9528 netfang: gudmundur@fannberg.is
Ágúst Kristjánsson lgf í síma: 893-8877, netfang: agust@fannberg.is
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.