Betri Stofan Fasteignasala og Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna:
Í einkasölu :eignina Hólatjörn 1, 800 Selfoss, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer
225-0601 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Gott fjögurra herbergja einbýlishús á vinsælum stað. Nýlegt eldhús og baðherbergi.
Húsið er timburhús klætt með liggjandi timburklæðningu. Innfeld lýsing undir þakkanti. Góður sólpallur með skjólveggjum er framan við húsið. Hellulögð innkeyrsla með snjóbræðslulögnum.
Nánari lýsing.Flísalögð
forstofa með fataskáp.
Rúmgóð
stofa og
borðstofa, útgengt í bakgarð. Fljótandi haðparket á gólfi. Léttur veggur skilur af eldhús sem er flísalagt og með innréttingu frá Kvikk. Loft eru upptekin með innfeldri Led lýsingu.
Á svefnherbergisgangi eru
þrjú rúmgóð
svefnherbergi, harðparket á gólfi. Fataskápar í herbergjum.
Á
baðherbergi er allt nýlegt, Flísalagt í hólf og gólf, hiti í gólfi. Falleg innrétting, stór flísalögð sturta og baðkar.
Flísalagt
þvottahús. Innangengt í bílskúr. Á gólfum bílskúrs er epoxý. Milliloft er í hluta bílskúrs.
Gróinn og snyrtilegur garður. Garðhús er í bakgarði.
Falleg og fjölskylduvæn eign á góðum stað. Sutt í Sunnulækjaskóla og leikskóla.
Eignin Hólatjörn 1 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign
225-0601, birt stærð 161.6 fm.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 6624422, tölvupóstur ss@betristofan.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.