Fasteignasalan TORG kynnir: Björt og falleg 4ra herbergja endaíbúð á þriðju hæð með stórum suðursvölum og bílskúr. Fallegt útsýni til sjávar úr stofu. Eignin skiptist í stofu, borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi innan íbúðar auk bílskúrs, sér geymslu og sameiginlegs þvottahúss og hj... Sýna meira
Fasteignasalan TORG kynnir: Björt og falleg 4ra herbergja endaíbúð á þriðju hæð með stórum suðursvölum og bílskúr. Fallegt útsýni til sjávar úr stofu. Eignin skiptist í stofu, borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi innan íbúðar auk bílskúrs, sér geymslu og sameiginlegs þvottahúss og hjóla- og vagnageymslu á jarðhæð. Íbúðin er 121,3 fm, bílskúr 22,1 fm og geymsla 3,6 fm, samtals 147,0 fm. Fasteignamat ársins 2024 er 91.800.000,-Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða Íbúðin er á rólegum og góðum stað í vesturbæ Reykjavíkur, einu vinsælasta hverfi höfuðborgarsvæðisins. Stutt er í alla þjónustu, m.a. háskóla, skóla, leikskóla, kvikmyndahús, verslanir, sundlaug og íþróttaiðkun. Ægisíðan er aðeins í örstuttu göngufæri en þaðan liggja vinsælir göngu-og hjólastígar til Nauthólsvíkur, Öskjuhlíðar og um Fossvogsdal svo eitthvað sé nefnt. Einnig er miðbær Reykjavíkur í innan við tveggja kílómetra fjarlægð. Nánari lýsing:Hol er rúmgott, þar er fataskápur. Rúmgóð og björt stofa með stórum fallegum glugga á vesturgafli hússins með útsýni til sjávar. Borðstofa tengist stofu og eldhúsi í opnu rými, úr borðstofu er gengið út á svalir til suðurs.Svalirnar sem vísa til suðurs er c.a. 20 fm. Eldhús með hvítri innréttingu, svört borðplata. Stór og rúmgóð eyja með góðu vinnuplássi. Hjónaherbergi er rúmgott, nýlegir fataskápar yfir heilan vegg. Barnaherbergin eru tvö, fataskápar í þeim báðum. Baðherbergi er flísalgt, rúmgóða sturta, gluggi á baðherbergi. Svefnherbergisgangi er hægt að loka. Virkt húsfélag sem Eignaumsjón sér um reksturinn á. Húsið hefur fengið gott og reglulegt viðhald. Hússjóður er 28.127,- á mánuði.Talsverð inneign í hússjóði. Innifalið í hússjóði er gjald fyrir stigaganginn, húseignina alla og bílskúrinn. Bílskúr er í bílskúrslengju við enda hússins, í honum er hita, rafmagni og bílskúrshurðaopnara. Geymsla íbúðarinnar er með glugga og hún er 3,6 fm. Þvotta og þurrkherbergi er á jarðhæð, hver með sína vél. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða -----------------------------------------------------------------------