Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu virkilega vel staðsett enda raðhús í botngötu við Heiðarholt 1c í Keflavík. Um er að ræða 90,7fm raðhús með þremur svefnherbergjum, verönd með heitum potti. Eignin er í göngufæri við Heiðarskóla og leikskólann Heiðarsel þar sem börn geta gengið án þess að fara yfir götu.
Eignin hefur verið talsvert endurnýjuð og má þar nefna: 2006,nýjar raflagnir og tenglar. 2008 Gróðurhús sett up. 2009 pallur bak við hús smíðaður og pottur settur. 2017-2018 baðherbergi endurnýjað. Gólfhiti settur í baðherb forstofu og anddyri Nýtt parket á gólf í alrými og flísar í þvottah og forstofu. Nýjar hurðar á baðh og þvottahNý eldhúsinnrétting og tæki. Öllum miðstöðvarofnum skipt út. 2021-2022 Viðgerðir á múr og hús málað trékantur á gafli endurnýjaður. Sett nýtt tréverk á pall framan við hús.
Forstofan hefur flísar á gólfi. Þar er fataskápur. Herbergin eru þrjú og hafa þau öll parket á gólfi. Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum. Þar er upphengt klósett og "walk in" sturta. Þvottahús hefur flísar á gólfi og þar er hurð út á afgirta verönd með heitum potti. Stofan er björt og rúmgóð með parket á gólfum. Eldhúsið er opið inní stofu með parket á gólfum. Rúmgóð innrétting.
Allar nánari upplýsingar veitir: Haraldur Guðmundsson Lögg. fasteignasali S. 661-9391 halli@studlaberg.is