Landmark fasteignasala kynnir: Fallega og vel skipulagða tveggja til þriggja herbergja 88,0 fm íbúð á jarðhæð með sér inngangi við Hamravík 20 í Reykjavík. Eignin er í góðu þriggja hæða fjölbýlishúsi byggt árið 2002 og er út frá stofu skjólsæll afgirtur sólpallur í suð-vestur. Sér geymsla er inn af ... Sýna meira
Landmark fasteignasala kynnir: Fallega og vel skipulagða tveggja til þriggja herbergja 88,0 fm íbúð á jarðhæð með sér inngangi við Hamravík 20 í Reykjavík. Eignin er í góðu þriggja hæða fjölbýlishúsi byggt árið 2002 og er út frá stofu skjólsæll afgirtur sólpallur í suð-vestur. Sér geymsla er inn af svefnherbergi með glugga sem hægt er að nýta sem aukaherbergi. Nánari upplýsingar veitir:Þórarinn Thorarensen lögg. fasteignasali s. 770-0309 eða Fáðu söluyfirlit strax hérnaNýlega hafa allar innréttingar og skápar verið filmaðar með vandaðri filmu.Nýlegur eldhúsofn og blöndunartæki eru í eldhúsi og baðherbergi.Nýjir gluggar og nýtt gler er í íbúðinni. Þrefalt glert og mjög hljóðeinangrandi.Nýtt parket frá Birgisson er á gólfum.Nánari lýsing:Forstofa er með fataskáp og flísum á gólfi. Eldhús er með innréttingu á tveimur hliðum með flísum á milli efri og neðri skápa, með bakarofni í vinnuhæð, keramik helluborði, gufugleypi yfir og tengi fyrir uppþvottavél og ísskáp, parket á gólfi. Borðstofa er framan við eldhús í opnu rými með stofu, parket á gólfi. Stofa er björt og rúmgóð, parket á gólfi. Þaðan er útgengi á afgirtan sólpall í suð-vestur.Svefnherbergi er rúmgott með fataskáp, parket á gólfi. Geymsla/aukaherbergi er staðsett inn af svefnherbergi, með glugga, parketi á gólfi. Baðherbergi er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf með salerni, hvítri baðinnréttingu, baðkari með sturtu yfir og handklæðaofni á vegg. Þvottahús er með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, vinnuborði, flísar á gólfi. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunarFáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA