Sunna Fasteignsala kynnir vel skipulagða íbúð til sölu í nýju og glæsilegu hverfi á Kirkjusandsreitnum, svokallaða Stuðlaborg við Hallgerðargötu 3. EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA SEM STENDUR TIL 5. APRÍL Nk.Íbúðin sem er á 1. hæð á vesturhlið hússins er glæsileg og vel búin, hverfið vel staðsett í mi... Sýna meira
Sunna Fasteignsala kynnir vel skipulagða íbúð til sölu í nýju og glæsilegu hverfi á Kirkjusandsreitnum, svokallaða Stuðlaborg við Hallgerðargötu 3. EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA SEM STENDUR TIL 5. APRÍL Nk.Íbúðin sem er á 1. hæð á vesturhlið hússins er glæsileg og vel búin, hverfið vel staðsett í miðborginni þar sem stutt er í verslun og þjónustu og vinsæla útivistarparadís í Laugardalgnum.Eignin er skráð 71,8 fm. skv. Fasteignaskrá HMS, íbúðin sjálf 64,3 fm og sér geymsla í sameign 7,5 fm. Stulðaborg er vegleg bygging með 5 stigahúsum og samtals 77 íbúðum umhverfis fallegan og vel hannaðan inngarð sem snýr á móti suðri. Undir húsinu er stór sameiginleg bílageymsla sem tryggir aðgengi að bílastæðum en þar er gott aðgengi að rafhleðslustöðvum. Hægt er að fá leigð stæði fyrir íbúa hússins. Hönnuðir byggingarinnar eru hin heimsþekkta danska arkitektastofa Schmidt/Hammer/Lassen og íslenska arkitektastofan VA arkitektar. Nánari lýsing: Anddyri með góðum fataskáp og parket á gólfi. Í opnu alrými er rúmgóð stofa með parketi, gólfsíðum gluggum og útgengi út á verönd og inn í inngarðinn. Eldhús er samhlíða stofunni í góðu flæði, þar er falleg innnrétting með viðaráferð, vönduð eldhústæki, spanhelluborð, ofn, vifta, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Svefnherbergi með góðum fataskáp sem nær upp í loft og parket á gólfi.Baðherbergið er rúmgott og vel innréttað, þar er góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara, innrétting með steinplötu, stór walk-in sturtuklefi með innbyggðum blöndunartækjum, upphengt salerni, handklæðaofni, flísalagt í hólf og gólf. Borðplötur innréttinga eru úr kvartsteini.Gólfhitakerfi er í íbúðinni og njóta gólfsíðir gluggar sín mjög vel bæði í stofu og svefnherbergi íbúðarinnar.Eigninni fylgir sér geymsla, 7,4 fm. með mikilli lofthæð, staðsett í kjallara hússins.Húsið er byggt á nýtískulegan hátt þar sem horft er til lausna sem tryggja loftgæði með vönduðu loftræstikerfi, þá var lagt upp úr góðri hljóðvist í húsinu með einangrun, gluggum og frágangi. Þetta er vandað hús á frábærum stað miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignsali í s. 777-2882 eða Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.