FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028
ÍBÚÐ, MATSHLUTI 01 0205 Í FJÖLBÝLISHÚSI VIÐ HALLGERÐARTÚN 51 Á HVOLSVELLI
SkilalýsingFullgerð íbúð, byggingarstig 4B. Sjá teikningar í myndasafni með eigninni.
Húsið er 10 íbúða fjölbýlishús á tveimur hæðum auk tæknirýmis á lóðinni. Mögulegt er að fá hlutdeildarlán frá HMS.
TeikningarAllar teikningar liggja fyrir þ.e. aðalteikningar, sökkulteikningar, burðarvirkisteikningar, glugga- og hurðateikningar, lagnateikningar og rafmagnsteikningar.
Gröftur og fyllingGrafið er niður og fyllt í með grófri möl sem er þjöppuð
Frágangur lóðarLóðin skilast með þökulögn, malbikaðir og eða hellulagðir gangstígar, malbikuðu bílaplani, sorpskýli, lok fylgja ekki.
BotnplataEinangrun undir plötu er 100mm plasteinangrun. Steypa er af gerðinni S-250.
Sökklar og botnplataSökklar eru steyptir og einangraður að utan með 75mm steinullar sökkulplötum. Utan við einangrun kemur sementstrefjaplata. Einangrun undir plötu er 100mm plasteinangrun 24kg. Járnabinding er 10mm kambstál. Steypa er af gerðinni S-250.
LagnirSkólp-og regnvatnslagnir eru tengdar fráveitukerfi í götu. Ofnar eru í íbúðum, handklæðaofn er á baði. Rör í rör kerfi fyrir neysluvatn ásamt ofnalögnum er undir botnplötu og í millilofti og tengt við tengikistur.
ÚtveggirÚtveggir eru steyptir, svo og veggir milli íbúða og milligólfið. Utan á útveggina kemur 100mm steinullareinangrun. Útveggjaklæðning er úr litaðri stálklæðningu. Burðarkerfi klæðninga er úr áli.
InnveggirInnveggir eru úr 70mm blikkstoðum, einangraðir með 70mm einangrun og síðan klæddir með 12mm OSB plötum, svo 13mm gipsi, beggja vegna. Veggir eru spartslaðir, grunnaðir og málaðir í ljósum lit.
Brunaveggur milli íbúða og milligólfBrunaveggir milli íbúða eru steyptir 200mm þykkir. Plata milli hæða er steypt 230mm þykk.
Þak og loftÞak er byggt upp úr kraftsperrum, klætt með krossviði. Tvöfaldur ábræddur þakpappi. Loftræsting er samkvæmt grunnmynd aðalteikningar. Að innan eru loft einangruð með 200 mm einangrun og klædd með 1x13mm gipsklæðningu, raflagnagrind komin. Loft eru spörtluð, grunnuð og máluð í ljósum lit.
Gluggar og hurðirGlugga- og hurðakarmar eru málaðir að innan og með álkápu að utan.
Innréttingar:Sturta er með glerskilrúmi og eru veggir við sturtu flísalagðir með samskonar flísum og eru á gólfi, blöndunartæki fylgja. Innrétting á baði er 800mm með 2 skúffum og vaski ofaná, blöndunartæki fylgja og spegill. Innrétting er fyrir þvottavél og þurrkara. Upphengt klósett er á baði með hæglokandi setu. Innrétting í eldhúsi er með plastlagðri borðplötu, vaskur og blöndunartæki fylgja. Heimilistæki: Ofn og helluborð. Hægt að koma fyrir uppþvottavél. Fataskápar eru í hjónaherbergi, 2400mm Fataskápur er í barnaherbergjum, 600-1000mm Fataskápur er í forstofu, 1200mm Innihurðir eru yfirfelldar hvítar, allar hurðir eru 800mm.
Gólfefni:Gráar flísar eru á gólfum í forstofu og baðherbergi. Harðparket er á öðrum rýmum í viðarlit.
Opinber gjöldGatnagerðargjöld eru að fullu greidd, þ.a.s. byggingarlóð, gatnagerð, byggingarleyfisgjald ogstofngjald holræsa. Inntaksgjöld vatns, rafmagns og hita eru einnig greidd. Skipulagsgjald kemur til greiðslu síðar og er ógreitt við afhendingu, (kaupandi greiðir).
AfhendingartímiÍbúðin er tilbúin til afhendingar
Kaupendur greiða engin umsýslugjöld hjá Fannberg fasteignasölu ehf.Allar nánari upplýsingar veita:
Ágúst Kristjánsson lgf. gsm: 893-8877, netfang: agust@fannberg.is
Guðmundur Einarsson lgf. gsm: 863-9528, netfang: gudmundur@fannberg.is