Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala Halldóruhagi 8 - 101
Um er að ræða glæsilega þriggja herbergja íbúð á neðri hæð í fjórbýlishúsi með sér inngangi. Eignin er skráð samtals 93,5 fm. að stærð og tilheyrir eigninni 10 fm. verönd til suðurs.Íbúðin er staðsett í vesturenda neðri hæðar hússins og skiptist í forstofu, geymslu, snyrtingu, tvö svefnherbergi, stofu og eldhús í opnu rými og baðherbergi/þvottaaðstöðu. Forstofa með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Geymsla er innaf forstofu með flísum á gólfi.
Snyrting er innaf forstofu með flísum á gólfi.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parket á gólfi og fataskápum. Annað herbergið er innaf forstofu og hitt á gangi.
Stofa og eldhús í opnu rými með parket á gólfi. Útgengi úr stofu út á verönd til suðurs. Góð innréttin með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél og bakraofn í vinnuhæð. Eldunareyja þar sem hægt er að sitja við og eru skúffur öðru megin.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, sturta með glerskilrúmi, upphengt wc, góð innrétting við vask ásamt speglaskápum og stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð í innréttingu. Opnanlegur gluggi er á baði.
Eigninni tilheyrir hlutdeild í sameiginlegri geymslu.
Annað: - Sér inngangur
- Gólfhiti
- Loftskipti / útsog
- Húsið hefur fengið byggingalistarverðlaun Akureyrarbæjar.
- Sér merkt stæði með rafmagnstengil - ( 3ja fasa 22 kW )
- Stutt í náttúruparadísina í Kjarnagskógi og Naustaborgum.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
olafur@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955