Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Hafnarstræti 30 íbúð 201 - snyrtileg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð með sérinngangi á efri hæð í litlu fjölbýli í Innbænum - stærð 49,9 m²
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu. Forstofa er með flísum á gólfi, fataskáp og hengi.
Eldhús er með ljósu harðparketi á gólfi snyrtilegri hvítri innréttingu með dökkri bekkplötu.
Stofan er með eldhúsinu í opnu rými og þar er ljóst harðparketi á gólfi og gluggum til austurs út að pollinum.
Svefnherbergið er með ljósu harðparketi á gólfi og hvítum fataskáp og útgangi út á svalir til austurs.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og á hluta veggja, ljósri innréttingu með stæði fyrir þvottavél og sturtu. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu.
Annað- Ljóseiðari er kominn inn, en ótengdur.
- Tvær rúmgóðar sameiginlegar geymslur er í húsinu.
- Húsbúnaður getur fylgt með við sölu.
- Vel staðsett eign - örstutt í miðbæinn.
- Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.