Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.8969565 og Hús fasteignasala kynna:
Nýlegt, bjart og sérlega stílhreint 96,1fm, 4 herb. raðhús á frábærum stað á Selfossi.
Stutt í hesthúsin og Bónus og leikskóli í léttu göngufæri.Komið er inn í flísalagða
forstofu með tvöföldum skáp fyrir yfirhafnir. Tvö
svefnherbergi með fataskápum og harðparketi á gólfum þar sitt hvoru megin.
Þvottahús með stórri innréttingu.
Baðherbergi með flísalagðri sturtu, vaski á skúffuskáp, handklæðaofni og upphengdu klósetti, flísar einnig á gólfi. Rúmgott
hjónaherbergið innst með góðum fataskápum.
Bjart opið sameiginlegt rými stofu og eldhúss og gengt út í garð norðan við húsið. Hvít innrétting í
eldhúsi og vönduð tæki, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti fylgja við sölu.
Að utan er húsið klætt með viðhaldsléttri klæðningu, hurðir og gluggar eru ál/tré og bárujárn á þaki.
Mulningur í
innkeyrslu og steypt sorptunnuskýli,
dálítill grasblettur norðan við húsið.
Virkilega fínt fjölskylduhús. Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar og sýnir eignina.
S. 896 9565 loftur@husfasteign.is Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup) lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800.- af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.