Heimili fasteignasala, s: 530-6500, kynnir til sölu bjarta og vel skipulagða fjögurra herbergja sérhæð með afar fallegu útsýni á þriðju (efstu) hæð, auk stæðis í lokaðri bílageymslu, í litlu fjölbýli við Gvendargeisla í 113 Reykjavík. Eignin er skráð 117,9 fm að stærð, er með sér inngangi, og skipi... Sýna meira
Heimili fasteignasala, s: 530-6500, kynnir til sölu bjarta og vel skipulagða fjögurra herbergja sérhæð með afar fallegu útsýni á þriðju (efstu) hæð, auk stæðis í lokaðri bílageymslu, í litlu fjölbýli við Gvendargeisla í 113 Reykjavík. Eignin er skráð 117,9 fm að stærð, er með sér inngangi, og skipist í rúmgott anddyri, bjarta stofu, eldhús, hjónaherbergi, tvö barnaherbergi, baðherbergi, þvottahús í sér rými inn af anddyri og rúmgóða geymslu þar inn af með glugga. Falleg eign sem býður upp á mikla möguleika. Áhugasamir geta bókað skoðun hérNánari lýsing:Forstofa: Flísar á gólfi og fataskápur innan rýmis.Þvottahús: Inn af anddyri og er með ágætri vinnuaðstöðu, vask, opnanlegum glugga og flísum á gólfi. Geymsla: Inn af þvottahúsi og er afar rúmgóð, með parketi á gólfi og opnanlegum glugga innan rýmis. Dæmi eru um að geymslan hafi verið nýtt sem skrifstofu eða fjórða svefnherbergi íbúðar.Eldhús: Parket á gólfi, ágæt eldri innrétting. Léttir veggir eru milli eldhúss og stofu.Stofa: Björt og rúmgóð, gluggar á tvo vegu, afar fallegt útsýni, parket á gólfi og útgengi á rúmgóðar svalir. Hjónaherbergi: Rúmgott, parket á gólfi og fataskápur innan rýmis.Barnaherbergi 1: Rúmgott, parket á gólfi, fataskápur innan rýmis.Barnaherbergi 2: Rúmgott, parket á gólfi, fataskápur innan rýmis.Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtuaðstöðu, vegghengt WC, ágæt innrétting og gluggi með opnanlegu fagi.Á jarðhæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla og eigninni fylgir sér bílastæði í lokaðri bílageymslu. Falleg og vel skipulögð eign í grónu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla og fallega náttúru. Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., s: 896-2953,