Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Vel skipulögð og mikið endurnýjuð 4ra herbergja íbúð á 2. hæð að Grýtubakka 30. Eignin er skráð 105,1 fm. samkvæmt Þjóðskrá Íslands og skiptist í: hol, stofu, borðstofu, eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi og sérgeymslu. Mjög... Sýna meira
Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Vel skipulögð og mikið endurnýjuð 4ra herbergja íbúð á 2. hæð að Grýtubakka 30. Eignin er skráð 105,1 fm. samkvæmt Þjóðskrá Íslands og skiptist í: hol, stofu, borðstofu, eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi og sérgeymslu. Mjög stutt er í skóla, leikskóla og Mjóddina sem hýsir alla helstu þjónustu eins og verslanir, heilsugæslu og strætósamgöngur. Einnig er stutt í Elliðarárdalinn þar sem eru fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði.Frekari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali í S: 844-6516 eða .Íbúðin var mikið tekin í gegn árið 2022, meðal annars parket, hurðar, innréttingar, baðherbergi, ljós, tenglar og rofar. Allt húsið var málað að utan 2020-2021 og voru settar nýjar svalahurðir, gler og viðhaldsléttir gluggar.Seljandi hefur greitt sinn hluta í uppsetningu á rafhleðslustöðvum sem setja á upp á sameiginlegu bílastæði fjöleignahúss. NÁNARI LÝSING: Hol/anddyri: Frá anddyri tekur við hol og svefnherbergisgangur sem tengir saman rými íbúðarinnar. Flæðandi harðparket er á gólfi.Eldhús: Bjart eldhús með nýrri eldhúsinnréttingu, helluborði, bakaraofni, gufugleypi og tengi fyrir uppþvottavél. Stofa/borðstofa: Stofa og borðstofa eru samliggjandi og bjartar með harðparketi á gólfi. Stórir endurnýjaðir og viðhaldsléttir gluggar gera rýmið bjart og skemmtilegt ásamt því að frá borðstofu er útgengt á svalir.Svefnherbergi: Þrjú svefnherbergi eru í eigninni. Harðparket á öllum herbergjunum.Baðherbergi: Flísalagt með stórum gráum flísum frá Parka, búið fallegri innrétting, upphengdu salerni, handklæðaofni, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og walk in sturtu með hertu gleri.Geymsla: Rúmgóð 14 fm sérgeymsla er innan sameignar með góðum hillum. Hjóla- og vagnageymsla: Innan sameignar er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Um er að ræða mikið endurnýjaða fjölskyldueign á vinsælum stað í bökkunum í neðra Breiðholti. Öll þjónusta, skólar, leikskólar og afþreying í göngufæri. Einnig er stutt í Elliðarárdalinn þar sem eru fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði. Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali í gsm 844-6516 eða Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram komaí söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegirog sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.