



Viltu fasteignir kynna Grýtubakka 22 sem er 104,3m2 4ra herbergja íbúð á 2. hæð.
Eignin getur verið laus fljótlega eftir kaupsamning.
Eigandi skoðar uppítöku á ódýrari eða jafn dýrri eign á Kársnesi.
Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit, húsfélagsyfirlit og önnur sölugögn eignarinnar.
Eignin skiptist í forstofu, samliggjandi stofu/borðstofu og eldhús, 3 góð svefnherbergi, baðherbergi. Í sameign í kjallara eru hjóla-og vagnagleymsla ásamt sér 9m2 geymslu fyrir íbúðina.
Eignin er skráð 104.3m2, þar af 9m2 geymsla í kjallara
Nánari lýsing:
Forstofa: Frá sameign er gengið í forstofu/holog þaðan er gengið í önnur rými íbúðarinnar. Góður innbyggður fataskápur er í forstofu/gangi.
Stofa/borðstofa: Samliggjandi og rúmgóð í opnu og björtu rými. Frá stofu er gengið út á svalir.
Svalir: Út frá stofu eru um 5m2 suðursvalir.
Eldhús: Mjög rúmgóð innrétting á tveimur veggum og opið í eldhús frá báðum endum. Pláss fyrir uppþvottavél og gott borðpláss.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og í votrými. Baðkar með sturtuaðstöðu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara
Hjónaherbergi : Rúmgott og bjart með stórum fataskáp.
Herbergi 2: Rúmgott og bjart herbergi.
Herbergi 3: Gott og bjart herbergi sem nýtist vel.
Geymsla: Í sameign í kjallara er 9m2 geymsla sem fylgir íbúðinni.
Í sameign er einnig sameiginleg hjólageymsla.
Eignin er á frábærum stað í Breiðholti þar sem stutt er í þjónustu, skóla/leikskóla og útvist!
Nánari upplýsingar veita Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 / heidrekur@viltu.is eða Viltu fasteignir í síma 583-5000 / hvad@viltu.is
Viltu fasteignir bjóða fasta söluþóknun frá 995.000 kr. m.vsk
Allt innifalið.
Kynntu þér málið á Viltu.is
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.





Kíktu á dæmið með Aurbjörgu







































| Dags. | Kaupverð |
|---|---|
| 22. apríl 2020 | 37.300.000 kr. |
| 8. ágúst 2006 | 17.200.000 kr. |
| Íbúð | Herbergi | Stærð | Síðasta ásetta verð | Síðasti kaupsamningur |
|---|---|---|---|---|
0101 | - | - | - | 9.500.000 kr. 25. janúar 2013 |
0102 ![]() | 3 | 71,00 m² | 53.000.000 kr. 6. nóvember 2024 | 39.000.000 kr. 22. mars 2021 |
0103 | - | - | - | - - |
0201 ![]() | 4 | 104,30 m² | 63.500.000 kr. 22. október 2026 | 37.300.000 kr. 22. apríl 2020 |
0202 ![]() | 3 | 71,00 m² | 53.900.000 kr. 6. nóvember 2026 | 51.000.000 kr. 27. desember 2024 |
0203 | - | - | - | 16.300.000 kr. 31. janúar 2007 |
0301 | - | - | - | 46.000.000 kr. 15. apríl 2021 |
0302 ![]() | 3 | 70,70 m² | 53.900.000 kr. 19. apríl 2026 | 52.000.000 kr. 10. júní 2026 |
0303 ![]() | 4 | 104,30 m² | 46.000.000 kr. 9. febrúar 2021 | 25.800.000 kr. 2. mars 2016 |
| Dags. | Stærð | Fermetraverð | Ásett |
|---|---|---|---|
| 22.10.2026 Nánar | 104,3 m² | 608.821 kr. | 63.500.000 kr. |
| 14.10.2026 Nánar | 104,3 m² | 647.172 kr. | 67.500.000 kr. |