Ragna Valdís Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali og Hús fasteignasala. kynna í einkasölu snyrtilegt og vel skipulagt 110,6 fm raðhús við Gráhellu 6 á Selfossi.
** Seljendur skoða skipti á eign á höfuðborgarsvæðinu **Notalegt og vel skipulagt timburhús með þremur svefnherbergjum, rúmgóðu alrými og góðu útisvæði.
Stofa og eldhús mynda opið og bjart alrými með parketi á gólfum. Úr stofunni er gengið út á rúmgóðan pall.
Þrjú svefnherbergi eru í eigninni, þar af tvö með fataskápum og parket á gólfum.
Forstofa er flísalögð og með góðum fataskáp.
Eldhúsið er með snyrtilegri tvítóna innréttingu og eyju.
Baðherbergið er flísalagt og vel útbúið með rúmgóðri innréttingu, plássi fyrir þvottavél og þurrkara, walk-in sturtu, handklæðaofni og upphengdu salerni.
Geymsla er innan íbúðar og fyrir framan húsið er steypt bílaplan.
Nýleg borðplata í eldhúsi.
Notaleg og snyrtileg eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar veitir Ragna Valdís Sigurjónsdóttir, Löggiltur fasteignasali, í síma 846-6581, tölvupóstur ragna@husfasteign.is.
,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.