LIND Fasteignasala & Ragnhildur Finnbogadóttir, löggiltur fasteignasali, kynna til sölu:Fallega, bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð, á þriðju hæð með sérinngangi í Goðaborgum 1 í Grafarvogi.Skráð stærð eignar skv. FMR er 86,5 fm og skiptist í íbúð 83,3 fm og geymslu 3,2 fm. Íbúðin er me... Sýna meira
LIND Fasteignasala & Ragnhildur Finnbogadóttir, löggiltur fasteignasali, kynna til sölu:Fallega, bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð, á þriðju hæð með sérinngangi í Goðaborgum 1 í Grafarvogi.Skráð stærð eignar skv. FMR er 86,5 fm og skiptist í íbúð 83,3 fm og geymslu 3,2 fm. Íbúðin er merkt 03-03. Allar nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Finnbogadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 772-2791 eða Eignin skiptist í:Forstofu, hjónaherbergi, svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi og svalir.Nánari lýsing eignar:Forstofa: Er flísalögð. Fataskápur með rennihurðum.Eldhús: Svört eldhúsinnrétting með bakarofni, keramik helluborði, gufugleypi og uppþvottavél. -Fallegt útsýni er úr borðkrók í eldhúsi, yfir Akranes, Esju og út á sjó. Stofa: Björt og rúmgóð stofa með harðparketi á gólfi. Útgengt er úr stofu á suður svalir.Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtu. Speglaskápur fyrir ofan hvítan vask sem er í ljósri innréttingu. Tengi er fyrir þvottavél. Hjónaherbergi: Er rúmgott, með fataskáp og með harðparketi á gólfi.Svefnherbergi: Er parketlagt með harðparketi.Geymsla: Er staðsett í sameign á neðstu hæð hússins.Hjóla- og vagnageymsla: Er sameiginleg á neðstu hæð hússins.Framkvæmdir sem farið hefur verið í síðastliðin fimm ár skv. húsfélagi:-Framhlið hússins máluð, ásamt gluggum að framanverðu.-Múrverk yfirfarið og lagfært á stigapöllum.-Skipt um þakrennur og niðurfallsrör. Goðaborgir 1 er vel staðsett eign þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, eins og t.d. skóla, leikskóla, verslanir, sund, líkamsrækt, heilsugæslu.Allar nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Finnbogadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 772-2791 eða Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.